Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 33/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 33/2015

Miðvikudaginn 6. júlí 2016

A og B

gegn

umboðsmanni skuldara

ÚRSKURÐUR

Mál þetta úrskurða Lára Sverrisdóttir formaður, Sigríður Ingvarsdóttir og Þórhildur Líndal.

Þann 17. nóvember 2015 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A, og B. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 3. nóvember 2015 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda voru felldar niður.

Með bréfi 27. nóvember 2015 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 15. janúar 2016.

Greinargerðin var send kærendum til kynningar með bréfi 25. janúar 2016 og þeim gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir bárust frá kærendum með bréfi 8. febrúar 2016. Voru þær sendar Embætti umboðsmanns skuldara með bréfi 9. febrúar 2016 og óskað eftir afstöðu embættisins. Umboðsmaður taldi ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna málsins.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá kærunefnd greiðsluaðlögunarmála, þ.m.t. mál kærenda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 32. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga (lge.), sbr. 13. gr. laga nr. 85/2015.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur eru fædd 1963 og 1965. Kærandi A starfar hjá C. Kærandi B er öryrki en starfar hjá D í 65% starfi. Tekjur kærenda eru vegna launa, sjúkradagpeninga og örorkubóta.

Heildarskuldir kærenda samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara eru 35.511.454 krónur.

Kærendur rekja fjárhagserfiðleika sína til atvinnuleysis, tekjulækkunar og veikinda.

Kærendur lögðu fram umsókn um greiðsluaðlögun 26. ágúst 2014. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 6. október 2014 var þeim veitt heimild til greiðsluaðlögunar og umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum þeirra. Í fylgiskjali með ákvörðun umboðsmanns var upplýst um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun samkvæmt 12. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 25. ágúst 2015 lagði umsjónarmaður til að greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda yrðu felldar niður samkvæmt 1. mgr. 15. gr. lge. þar sem fram væru komnar upplýsingar sem ætla mætti að hindruðu að greiðsluaðlögun á grundvelli lge. væri heimil. Kærendur hefðu brotið gegn a-lið 1. mgr. 12. gr. lge., en samkvæmt ákvæðinu skuli skuldari leggja til hliðar af launum sínum og öðrum tekjum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Kærendur hafi ekkert lagt fyrir á tímabili frestunar greiðslna, svokallaðs greiðsluskjóls. Miðað við fyrirliggjandi forsendur og upplýsingar um óvænt útgjöld frá kærendum sjálfum hefðu þau átt að geta lagt fyrir 2.324.980 krónur í greiðsluskjólinu. Þau hafi hins vegar ekkert lagt til hliðar og gefið þær skýringar að þau hefðu aðstoðað uppkomnar dætur sínar fjárhagslega.

Með bréfi umboðsmanns skuldara til kærenda 9. október 2015 var þeim gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan tilskilins frests og leggja fram frekari gögn áður en umboðsmaður skuldara tæki ákvörðun um hvort fella skyldi niður greiðsluaðlögunarumleitanir þeirra samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr., sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Kærendur hafi rætt við starfsmenn embættisins í síma og komið á fund þeirra í kjölfarið.

Með bréfi til kærenda 3. nóvember 2015 felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda niður með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

II. Sjónarmið kærenda

Kærendur óska eftir því að mál þeirra verði tekið aftur til efnislegrar meðferðar. Skilja verður það svo að þau krefjist þess að ákvörðun umboðsmanns skuldara verði felld úr gildi.

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Af hálfu umboðsmanns skuldara er vísað til þess að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna umboðsmanni skuldara um það sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Skuldara skuli gefið tækifæri til að láta álit sitt í ljós áður en slík ákvörðun sé tekin. Í 12. gr. lge. sé fjallað um skyldur skuldara meðan hann njóti greiðsluskjóls. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Skriflegar leiðbeiningar um 12. gr. lge. hafi fylgt með ákvörðun um samþykki umsóknar kærenda um greiðsluaðlögun sem þeim hafi borist með ábyrgðarbréfi. Auk þess séu skyldur skuldara í greiðsluskjóli ávallt útskýrðar og ítrekaðar á fyrsta fundi umsjónarmanns og skuldara. Þessar upplýsingar hafi enn fremur verið aðgengilegar á heimasíðu umboðsmanns skuldara. Kærendum hafi því vel mátt vera ljóst að þau skyldu halda til haga þeim fjármunum sem þau hafi átt aflögu í lok hvers mánaðar til greiðslu af skuldum sínum þegar að því kæmi að semja við kröfuhafa.

Greiðsluskjól kærenda hafi staðið yfir í rúmlega tíu mánuði en miðað sé við tímabilið frá 1. nóvember 2014 til 31. ágúst 2015. Upplýsingar um laun byggi á staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra, öðrum opinberum gögnum og skattframtölum og tekið sé mið af öllum tekjum, þar á meðal vaxtabótum. Í eftirfarandi sundurliðun útreikninga sé miðað við að unnt sé að leggja fyrir mismun meðaltekna á mánuði og framfærslukostnaðar. Sú fjárhæð sé nefnd greiðslugeta.

Samkvæmt gögnum málsins hafi kærendur haft neðangreindar tekjur á tímabilinu í krónum:

Tekjur jan. - ágúst nóv. - des. Tekjur
2015 2014 alls
Laun skv. staðgreiðsluskrá 4.499.502 1.011.312 5.510.814
Vaxtabætur o.fl. 560.780 560.780
Samtals 5.060.282 1.011.312 6.071.594
Sparnaður 2015 2014 Alls
Heildartekjur 5.060.282 1.011.312 6.071.594
Heildar framfærslukostn. 2.152.536 538.134 2.690.670
Meðaltekjur á mán. 632.535 505.656 569.096
Framfærsluk. á mán. 269.067 269.067 269.067
Greiðslugeta á mán. 363.468 236.589 300.029
Áætlaður sparnaður 2.907.746 473.178 3.380.924

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum megi ætla að mánaðarleg heildarútgjöld kærenda hafi verið 269.067 krónur á mánuði á tímabili greiðsluskjóls. Miðað sé við nýjustu framfærsluviðmið kærendum í hag. Samkvæmt því sé miðað við framfærslukostnað októbermánaðar 2015 fyrir hjón auk upplýsinga um útgjöld frá kærendum sjálfum. Gengið sé út frá því að kærendur hafi alls haft heildartekjur að fjárhæð 6.071.594 krónur á fyrrnefndu tímabili og hafi átt að geta lagt fyrir 3.380.924 krónur. Frá þeirri fjárhæð dragast 42.314 krónur sem Tryggingastofnun hafi dregið af kæranda B.

Kærendur kveðist hafa þurft að standa straum af auknum kostnaði á tímabilinu vegna viðhalds bifreiðar, eldsneytis, trygginga, lyfja og læknisþjónustu. Þá hafi hita- og rafmagnskostnaður verið hærri en gert hafi verið ráð fyrir sem og gjöld vegna húsfélags. Í ljósi þess að kærendur búi á höfuðborgarsvæðinu taki umboðsmaður skuldara ekki tillit til hærri rekstrarkostnaðar bifreiðar. Kostnaður vegna rafmagns, hita og húsfélags hafi verið vanáætlaður um 7.500 krónur á mánuði og því sé nú tekið tillit til þess við útreikning sparnaðar.

Kærendur hafi lagt fram kvittanir að fjárhæð 296.480 krónur vegna tannviðgerða. Ein þeirra kvittana hafi verið greidd áður en greiðsluskjól hófst. Þá hafi kærendur þurft að greiða kostnað að fjárhæð 193.749 krónur vegna bílaviðgerða á tímabilinu. Þau hafi samið um að greiða fyrir viðgerðirnar með 12 mánaðarlegum afborgunum, jafnvel þótt þau hefðu getað staðgreitt þann kostnað. Þrátt fyrir að tekið yrði tillit til allra þeirra kvittana sem kærendur hafi lagt fram skorti samt 2.455.330 krónur upp á sparnað þeirra á tímabilinu en kærendur hafi ekkert lagt fyrir.

Kærendur hafi greint frá því að þau hafi stutt tvær uppkomnar dætur sínar fjárhagslega og því hafi þau ekki náð að leggja fyrir. Umboðsmaður skuldara geti ekki tekið tillit til þess að kærendur hafi veitt fjárráða einstaklingum fjárhagsaðstoð. Því sé ekki unnt að taka tillit til stuðnings kærenda við dætur sínar á tímabilinu.

Á meðan á greiðsluskjóli standi skuli skuldari greiða tilfallandi mánaðarlegan framfærslukostnað svo sem rafmagn, hita, fasteignagjöld, samskiptakostnað og fleira þess háttar. Í fylgiskjölum með ákvörðun umboðsmanns skuldara um heimild kærenda til að leita greiðsluaðlögunar sé að finna greiðsluáætlun þar sem gert sé ráð fyrir mánaðarlegum framfærslukostnaði kærenda. Meðan á frestun annarra greiðslna standi sé skuldara ætlað að greiða gjöld og kostnað vegna framfærslu sé greiðslugeta hans jákvæð í mánuði hverjum, enda markmið með greiðsluaðlögun að koma jafnvægi á skuldir og greiðslugetu.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Umsjónarmanni sé almennt óheimilt að miða við annan framfærslukostnað en þann sem reiknaður hafi verið fyrir skuldara með tilliti til fjölskylduaðstæðna. Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara byggist á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar að við mat á því hvort skuldarar hafi sinnt skyldum sínum meðan á frestun greiðslna standi sé þeim jafnan játað nokkurt svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé að meginreglu til tekið tillit til annarra útgjaldaliða sem fella megi undir almennan heimilisrekstur samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge., séu lögð fram gögn þar um.

Því verði að telja að kærendur hafi brotið gegn skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. með því að leggja ekki til hliðar þá fjárhæð sem þau hafi mánaðarlega haft aflögu að teknu tilliti til framfærslukostnaðar.

Gera verði þá kröfu til einstaklinga, sem glími við svo verulega fjárhagserfiðleika að íhlutunar sé þörf, að þeir dragi úr útgjöldum sem ætla megi að hægt sé að komast hjá eða fresta og sérstaklega á meðan þeir standi í greiðsluaðlögunarumleitunum vegna endurskipulagningar fjármála sinna. Skuldurum í greiðsluaðlögun séu settar ákveðnar skorður á ráðstöfun fjár í greiðsluskjóli. Þeim sé í fyrsta lagi skylt að leggja fyrir það fé sem sé umfram framfærslukostnað og í öðru lagi að ráðstafa ekki því fé sem gagnast gæti lánardrottnum sem greiðsla.

Að framangreindu virtu og með hliðsjón af gögnum málsins hafi ekki verið hjá því komist að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar samkvæmt 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Umboðsmaður skuldara fer fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest með vísan til forsendna sem fram komi í henni.

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. lge. með vísan til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge., þar sem fjallað er um skyldur skuldara á meðan leitað er greiðsluaðlögunar.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skal skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Í 2. mgr. 12. gr. kemur fram að telji umsjónarmaður að skuldari hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 1. mgr. skuli hann óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður samkvæmt 15. gr. lge.

Eins og fram er komið tilkynnti umsjónarmaður með bréfi til umboðsmanns skuldara 25. ágúst 2015 að hann teldi að kærendur hefðu brugðist skyldum sínum við greiðsluaðlögunarumleitanir. Umsjónarmaður vísaði þar meðal annars til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. og taldi að fella ætti niður greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda á grundvelli 1. mgr. 15. gr. lge. Í framhaldi af þessu felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda niður 3. nóvember 2015.

Að mati umboðsmanns skuldara áttu kærendur að leggja til hliðar 3.380.924 krónur eftir að umsókn þeirra um greiðsluaðlögun var samþykkt, eða frá 1. nóvember 2014 til 31. ágúst 2015.

Samkvæmt fyrirliggjandi álagningarseðlum og launaupplýsingum ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa mánaðartekjur kærenda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. nóvember 2014 til 31. desember 2014: Tveir mánuðir
Nettótekjur A 305.220
Nettó mánaðartekjur A að meðaltali 152.610
Nettótekjur B 706.092
Nettó mánaðartekjur B að meðaltali 353.046
Nettótekjur alls 1.011.312
Mánaðartekjur alls að meðaltali 505.656
Tímabilið 1. janúar 2015 til 31. október 2015: Tíu mánuðir
Nettótekjur A 2.572.260
Nettó mánaðartekjurA að meðaltali 257.226
Nettótekjur B 2.716.118
Nettó mánaðartekjur B að meðaltali 271.612
Nettótekjur alls 5.288.378
Mánaðartekjur alls að meðaltali 528.838
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 6.299.690
Nettó mánaðartekjur alls að meðaltali í greiðsluskjóli 524.974

Sé miðað við framfærslukostnað umboðsmanns skuldara og tekjur kærenda var greiðslugeta kærenda þessi í greiðsluskjóli í krónum:

Tímabilið 1. nóvember 2014 til 31. október 2015: Tólf mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 6.299.690
Vaxtabætur 2015 141.806
Alls til ráðstöfunar í greiðsluskjóli 6.441.496
Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur að meðaltali í greiðsluskjóli 536.791
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns 269.067
Greiðslugeta kærenda á mánuði 267.724
Alls sparnaður í 12 mánuði í greiðsluskjóli x 267.724 3.212.692

Samkvæmt ofangreindu hefðu kærendur átt að geta lagt til hliðar 3.212.692 krónur á tímabilinu. Ekki er hægt að taka tillit til þess að kærendur hafi aðstoðað dætur sínar fjárhagslega, enda hafa kærendur ekki framfærsluskyldu gagnvart þeim.

Við mat á því hvaða fjárhæð skuldarar eiga að leggja til hliðar af launum sínum í greiðsluskjóli ber samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. að notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur. Þegar metið er hvort skuldari hafi sinnt skyldum sínum meðan á frestun greiðslna stendur er gert ráð fyrir svigrúmi til að mæta óvæntum útgjöldum.

Kærendur hafa lagt fram eftirtaldar kvittanir vegna óvæntra útgjalda á tímabili greiðsluskjóls:

Dags. Fjárhæð
16. apríl 2015 Viðgerð á bíl 48.340
14. apríl 2015 Viðgerð á bíl 53.768
16. mars 2015 Viðgerð á bíl 25.500
2. mars 2015 Viðgerð á bíl 12.153
24. febrúar 2015 Viðgerð á bíl 38.809
13. febrúar 2015 Viðgerð á bíl 5.000
22. desember 2014 Sjónvarpsviðgerð 24.481
Samtals 208.051

Kærendur hefðu samkvæmt þessu átt að geta lagt fyrir 3.004.641 krónu (3.212.692 krónur – 208.051 króna) á tímabili greiðsluskjóls í samræmi við skýr fyrirmæli a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. Kærendur hafa ekkert lagt til hliðar á tímabilinu.

Það er mat kærunefndarinnar að kærendum hafi mátt vera ljóst, með vísan til leiðbeininga umboðsmanns skuldara og þeirrar greiðsluáætlunar sem þau fengu í hendur, að þeim hafi borið skylda til þess samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. að leggja fé til hliðar af tekjum sínum á tímabili greiðsluskjóls.

Samkvæmt þessu fellst kærunefndin á þá niðurstöðu umboðsmanns skuldara að kærendur hafi ekki sinnt skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. á meðan þau nutu greiðsluskjóls.

Í ljósi alls þessa verður að líta svo á að umboðsmanni skuldara hafi borið samkvæmt 1. mgr. 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge., að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda niður. Með vísan til þess er hin kærða ákvörðun staðfest.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A og B er staðfest.

Lára Sverrisdóttir

Sigríður Ingvarsdóttir

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum