Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 299/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. júní 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 299/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18050046

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. maí 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. apríl 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. janúar 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Þann 15. febrúar 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að ítölsk stjórnvöld hefðu samþykkt viðtöku, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis þann 7. mars 2018. Útlendingastofnun ákvað þann 27. apríl 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 8. maí 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 22. maí 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 8. júní sl., ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd viðbótarupplýsingar frá talsmanni kæranda þann 19. júní sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Flutningur kæranda til Ítalíu fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Ítalíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi mótmæli því að verða sendur til baka til Ítalíu og óttist að verða settur aftur í [...] þar í landi. Þá kveður kærandi að aðstæður hans á Ítalíu hafi ekki verið góðar. Hann hafi dvalið í flóttamannabúðum í sex mánuði og í [...] í aðra sex mánuði, þar sem hann hafi verið beittur andlegu ofbeldi. Kærandi kveður að hann hafi verið [...] hafi ítölsk yfirvöld ekki útvegað honum húsnæði, þrátt fyrir beiðni hans þar um, og hann hafi því búið í almenningsgörðum eða hjá vinum sínum í kjölfarið. Þá sé heilbrigðiskort sem ítölsk yfirvöld hafi útvegað honum útrunnið og honum hafi ekki staðið til boða gjaldfrjáls lögfræðiþjónusta.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann hafi verið [...] í heimaríki sínu árið 2015 og hafi atvikið tengst pólitískum andstæðingum föður hans. Kærandi hafi dvalið á [...] eftir [...] og gefið lögregluskýrslu sem sé meðal gagna málsins. Þá kveður kærandi að hann hafi verið í [...]. Þá hafi móðir kæranda látist eftir að hann hafi yfirgefið [...].

Kærandi kveður að hann eigi erfitt með svefn og að [...] hans bæði í [...] og á Ítalíu hafi haft mikil áhrif á andlega líðan hans. Í [...] í [...] hafi hann ítrekað verið beittur ofbeldi af hálfu lögreglumanna og á Ítalíu hafi hann verið beittur andlegu ofbeldi. Þá komi fram í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 7. og 27. febrúar 2018, að kærandi sé með [...]. Enn fremur eigi kærandi sögu um [...] og . Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi farið til [...] á Ítalíu.

Í greinargerð sinni gerir kærandi margvíslegar athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 6. tölul. 3. gr., 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við að Útlendingstofnun dragi í efa málavaxtalýsingu hans í greinargerð, án réttmætrar ástæðu. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi í viðtali við kæranda talið þörf á að fá þýðingu á framlögðum skjölum hans en hafi síðar dregið í land og ákveðið að ekki skyldi þýða skjölin. Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að hann sé ekki í viðkvæmri stöðu, í ljósi atburða sem hann hafi upplifað og bágs andlegs og líkamlegs ástands hans. Í fjórða lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun í ákvörðun Útlendingastofnunar um sálfræðitíma sem kærandi hafi átt bókaðan þann 11. apríl sl., en af ákvörðuninni verði lesið að stofnunin hafi ekki beðið með að ákvarða í málinu þar til komunótur sálfræðings hafi legið fyrir. Þá gerir kærandi í fimmta lagi athugasemd við að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi fulltrúi stofnunarinnar ítrekað sett út á spurningar talsmanns kæranda og þannig komið í veg fyrir að málið upplýstist að fullu.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð byggir kærandi aðallega á því að sérstakar ástæður séu til staðar í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, í ljósi viðkvæmrar stöðu hans og aðstæðna hans á Ítalíu. Þá byggir kærandi á því að endursending hans til Ítalíu myndi fela í sér brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 3. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi vísar kærandi jafnframt til 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Þá fjallar kærandi í greinargerð sinni ítarlega um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu með vísan til ýmissa alþjóðlegra skýrslna og gagna, þ. á m. nýjustu ársskýrslna mannréttindasamtakanna Human Rights Watch og Amnesty International. Þar komi m.a. fram að álagið á ítalska hæliskerfið fari síst minnkandi. Aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd séu bágbornar, móttökuframkvæmdin slæm og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Þá fari fordómar í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna vaxandi á Ítalíu.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, sem birt hafi verið í Stjórnartíðindum þann 14. mars sl., verði ekki beitt í máli kæranda vegna sjónarmiða um bann við afturvirkni íþyngjandi laga og reglna sem leggi þrengri skorður við réttindum manna en áður var. Kærandi hafi lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd þann 17. janúar sl., áður en reglugerðin hafi tekið gildi. Þá telur kærandi að megináhersla í framangreindri reglugerð, um mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins og skilvirkni umsóknarferlisins, gangi þvert á markmið laga um útlendinga og vilja löggjafans sem komi fram í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum nr. 80/2016 og 81/2017.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld bera ábyrgð á viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu er byggð á því að ítölsk yfirvöld hafi ekki svarað beiðni um endurviðtöku innan tilskilins frests. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæður getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu hjá Útlendingastofnun, sem áhrif hefði á mál hans. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einhleypur og barnlaus karlmaður á [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 18. janúar og 15. mars 2018, kvað kærandi að hann hefði orðið fyrir [...] og þá svæfi hann ekki vel á næturnar. Kærandi telji líkamlegt heilsufar sitt ekki vera gott og þá sé andlegt heilsufar hans bágborið vegna atburða sem hann hafi upplifað, þ. á m. líkamlegs ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir í [...] í [...] og andlegs ofbeldis sem hann hafi sætt í [...] á Ítalíu. Í framlögðum komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. frá 7. febrúar til 11. apríl 2018, kemur m.a. fram að svo virðist sem kærandi hafi glímt við [...] og [...]. Þá sé hann með [...] þegar honum hafi liðið mjög illa. Þá hafi kærandi verið greindur með [...] og ýmsa fylgikvilla áfalla og verið ávísuð lyf vegna þess. Að öðru leyti hafi kærandi virst hraustlegur við skoðun.

Framburður kæranda ber með sér að hann sé þolandi ofbeldis og glími við andlega vanlíðan. Að mati kærunefndar gefa gögn málsins, þ. á m. komunótur frá Göngudeild sóttvarna, hins vegar ekki til kynna að andlegir og líkamlegir kvillar kæranda nái því alvarleikastigi að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda séu aðstæður hans ekki þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018); Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/) og
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni þá hefur hann kost á því að bera synjunina undir stjórnsýsludómstól (í. Tribunale Civile). Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn hæliskerfisins til að taka við skyndilegu eða verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnunin gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma umsækjendur um alþjóðlega vernd sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk stjórnvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja í þessum málaflokki.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veita gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu. Þó geta umsækjendur lagt fram beiðni um gjafsókn (í. gratuito patrocinio) kjósi þeir að bera endanlega synjun á umsókn sinni undir dómstóla. Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, eru frjáls félagasamtök til staðar sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu.

Ítalía er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá er Ítalía jafnframt aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna (e. 1951 Convention Relating to the Status of Refugees) og mannréttindasáttmála Evrópu, en grundvallarreglan um bann við endursendingu einstaklinga til svæðis þar sem þeir hafi ástæðu til að óttast ofsóknir eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð er lögfest í þessum alþjóðasáttmálum.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum. Flestir fái úthlutað gistirými í CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria) sem eru tímabundnar móttökumiðstöðvar en ella eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á gistiplássi í SPRAR (í. Sistema di protezione per richiedenti asilo e rifugiati) móttökumiðstöðvunum. Framboðið sé hins vegar takmarkað og ekki fái allir umsækjendur úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum. Þá bjóði sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á gistiaðstöðu en þau séu einnig af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld vinni að því að byggja upp fleiri móttökumiðstöðvar í því skyni að mæta þessum vanda.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér verður jafnframt ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfa þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fá þeir útgefið tryggingarkort (í. Tessera sanitaria) sem veitir þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafa lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mjög mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, bæði ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Samkvæmt ítölskum lögum er kynþáttahatur, kynþáttafordómar og hvers kyns mismunun bönnuð, hvort sem er á grundvelli kynþáttar, trúar, uppruna eða annarra atriða. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk yfirvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum og hatursglæpum, þ. á m. með innleiðingu aðgerðaráætlunar gegn kynþáttahyggju, hræðslu við útlendinga og umburðarleysi (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að ítölsk lögregluyfirvöld hafi fullnægjandi úrræði til þess að rannsaka þau mál sem leitað er til hennar með. Þó hafi verið gagnrýnt að saksókn mála taki í sumum tilfellum of langan tíma.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að ná ákveðinni lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans, sem fyrr segir. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að sú staðreynd ein og sér að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn flutningi, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Að því er varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur Mannréttindadómstóll Evrópu lagt til grundvallar að uppbygging og almennar aðstæður í móttökukerfi Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær standi í vegi fyrir öllum sendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til landsins, sbr. ákvörðun í máli Ali ofl. gegn Sviss (mál nr. 30474/14) frá 4. október 2016. Aftur á móti hefur í framkvæmd dómstólsins verið byggt á því að viðhlítandi trygging verði að liggja fyrir af hálfu ítalskra yfirvalda um viðunandi móttökuaðstæður áður en umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru í svo viðkvæmri stöðu að þeir þurfi sérstaka vernd eru sendir þangað. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda á Ítalíu hafa þegar verið raktar. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu sem kærunefnd hefur kynnt sér. Samkvæmt framburði kæranda hefur hann fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi á Ítalíu en bíður nú eftir niðurstöðu áfrýjunar í máli sínu þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að óttist kærandi um öryggi sitt eða verði fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar geti hann leitað ásjár ítalskra yfirvalda vegna þess.

Svo sem fram hefur komið er kærandi þolandi ofbeldis og glímir við afleiðingar þess, þ. á m. óþægindi í fæti og andlega vanlíðan. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kæranda teljist ekki til mikilla og alvarlegra veikinda sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu má ráða að þeir eigi rétt á heilbrigðisþjónustu, að því gefnu að þeir skrái sig inn í heilbrigðiskerfið. Þó svo að mikið álag sé á hæliskerfi Ítalíu telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi framburðar kæranda og upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. framlögð gögn kæranda frá [...] og Ítalíu, svo og skýrslur og aðrar upplýsingar um aðstæður á Ítalíu. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 15. mars 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 17. janúar 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi fjölmargar athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, þ. á m. umfjöllun í ákvörðun stofnunarinnar um sálfræðitíma kæranda svo og þá ákvörðun stofnunarinnar að láta ekki þýða tiltekin skjöl sem kærandi lagði fram.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi sálfræðitíma þann 11. apríl sl. en þann 26. apríl sl. óskaði Útlendingastofnun eftir komunótum frá sálfræðingi. Að sögn talsmanns kæranda óskaði hún samstundis eftir framangreindum gögnum frá Göngudeild sóttvarna sem henni bárust þann 2. maí sl. og hún kveðst hafa sent til Útlendingastofnunar samdægurs. Líkt og fram hefur komið er ákvörðun Útlendingastofnunar dagsett þann 27. apríl sl. en í tölvupósti frá fulltrúa Útlendingastofnunar, dags. þann 30. apríl sl., kemur fram að tekið verði tillit til framlagðra heilsufarsgagna, berist þau fyrir birtingardag. Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda var birt fyrir honum þann 8. maí sl. en um framangreindan sálfræðitíma kæranda segir í ákvörðuninni að talsmaður kæranda hafi verið inntur eftir gögnum þar um en ekki liggi fyrir hvort kærandi hafi sótt téðan tíma.

Kærunefnd gerir athugasemd við framangreinda rangfærslu í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Þótt af rökstuðningi stofnunarinnar verði ekki lesið að tillit hafi verið tekið til framangreindra gagna við ákvörðunartöku hjá stofnuninni, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga, liggur fyrir að framangreind gögn voru meðal fyrirliggjandi málsgagna sem kærunefnd bárust frá stofnuninni, fyrir birtingu ákvörðunarinnar. Þá liggur fyrir í reifun málsástæðna kæranda í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi hafi borið fyrir sig að hann glímdi við andlega vanlíðan og lá sú málsástæða því fyrir við ákvörðunartöku hjá stofnuninni. Þá kemur fram í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 15. mars 2018, að kæranda hafi m.a. verið leiðbeint um að leggja fram upplýsingaskýrslu frá Göngudeild sóttvarna og leitaði hann til læknis eða sálfræðings væri honum bent á að fá skriflegar upplýsingar um heilsufar sitt og skila til Útlendingastofnunar. Að framangreindu virtu var rökstuðningur í máli kæranda ekki í samræmi við 22. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd telur aftur á móti að gögn málsins bendi ekki til þess að skort hafi á rannsókn á þessum þætti málsins eða að í reynd hafi ekki verið lagt mat á heilsufar kæranda á grundvelli fullnægjandi gagna í málinu.

Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni kæranda, sem fulltrúi kærunefndar aflaði símleiðis þann 19. júní sl., innihalda óþýdd, framlögð gögn kæranda á [...] upplýsingar um [...] gegn honum á Ítalíu. Samkvæmt frásögn kæranda innihalda gögnin upplýsingar um að túlkur í [...] gegn kæranda á Ítalíu hafi tengsl við andstæðinga hans í [...] og því sé kærandi ekki öruggur á Ítalíu. Samkvæmt gögnum málsins tilkynnti fulltrúi Útlendingastofnunar talsmanni kæranda með tölvupósti, dags. 30. apríl sl., að stofnunin teldi ekki þörf á því að þýða umrædd skjöl. Þegar kæranda var birt ákvörðunin, þann 8. maí sl., hafði hann því þegar verið upplýstur um þá ákvörðun stofnunarinnar og fengið tækifæri til andmæla. Fyrir kærunefnd hefur kærandi hvorki óskað eftir né lagt fram fyrir nefndina þýðingar á framangreindum skjölum. Þá er það mat kærunefndar, í ljósi framangreindra upplýsinga um innihald gagnanna, að ekki sé ástæða til að afla þýðingar á þeim. Að framangreindu virtu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til að gera athugasemd við þennan þátt málsins. Þá er það mat kærunefndar að ekki sé tilefni til að gera athugasemd við rannsókn málsins að öðru leyti.

Meginmarkmiðið með stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgaranna með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Ljóst er, með vísan til framangreindrar niðurstöðu kærunefndar í máli kæranda, að framangreindur ágalli á ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki haft efnisleg áhrif á niðurstöðu máls hans og sé ekki slíkur að fella beri ákvörðunina úr gildi þegar af þeirri ástæðu.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl., voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærunefnd ítrekar það sem fram hefur komið í úrskurðum nefndarinnar eftir gildistöku breytingarreglugerðarinnar, þ. á m. úrskurði í máli nr. 199/2018 frá 24. apríl 2018, sem kærandi vísar til í greinargerð sinni. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli. Þá verður ekki litið svo á að setning reglugerðarinnar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga að því er varðar aukna áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins enda sé ljóst að vilji löggjafans hafi staðið til þess að slíkt samstarf hefði vægi við beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 17. janúar 2018 og sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Ítalíu ekki síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                        Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum