Hoppa yfir valmynd

Sjóferðir Arnars ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu um að hafna kröfu kæranda um að byggðakvóti sem úthlutaður var skipinu Þingey ÞH-51, (1650) fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 verði fluttur af skipinu og kæranda, veitt heimild til að veiða byggðakvótann.

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá Arnari Sigurðssyni f.h. Sjóferða Arnars ehf., Litlagerði 8, Húsavík, dags. 25. júní 2012, sem barst ráðuneytinu 27. sama mánaðar, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. mars 2012, um að hafna kröfu kæranda um að byggðakvóti sem úthlutaður var skipinu Þingey ÞH-51, skipaskrárnúmer 1650 fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 verði fluttur af skipinu og kæranda, Sjóferðum Arnars ehf., veitt heimild til að veiða byggðakvótann.


Kæruheimild er í 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. mars 2012, um að hafna kröfu kæranda um að byggðakvóti sem bátnum Þingey ÞH-51 (1650) var úthlutað fyrir fiskveiðiárið 2010/2011, verði fluttur af bátnum og kæranda, Sjóferðum Arnars ehf., veitt heimild til að veiða byggðakvótann.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 11. febrúar 2011, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 12. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Húsavík í Norðurþingi, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 999/2010, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 26. febrúar 2011. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 294 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Norðurþings sem skiptust á byggðarlögin Húsavík, 150 þorskígildistonn, Kópasker, 50 þorskígildistonn og Raufarhöfn, 94 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Norðurþingi með bréfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 22. desember 2010.


Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Þingey ÞH-51 (1650) með umsókn til Fiskistofu, dags. 26. febrúar 2011.


Með bréfum, dags. 7. mars 2011, tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta í Norðurþingi, m.a. á Kópaskeri um úthlutun byggðakvóta til einstakra báta í byggðarlaginu. Kæranda var tilkynnt að 3.970 þorskígildiskíló hafi komið í hlut bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, reglugerð nr. 999/2010, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011 og auglýsingu (I) nr. 126/2011, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Einnig kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri með fyrirvara um að úrskurðir ráðuneytisins í kærumálum gætu breytt þeirri niðurstöðu sem þar kom fram.


Þar sem stjórnsýslukærur bárust ráðuneytinu vegna framangreindrar úthlutunar byggðakvóta á Kópaskeri í Norðurþingi ákvað ráðuneytið með bréfi, dags. 30. mars 2011, að fresta úthlutun byggðakvóta á Kópaskeri þar til afgreiðslu á stjórnsýslukærunum væri lokið. Með bréfi, dags. 14. júlí 2011, tilkynnti ráðuneytið Fiskistofu að afgreiðslu á umræddum stjórnsýslukærum væri lokið og að úthlutun gæti farið fram á Kópaskeri í Norðurþingi.


Með bréfi, dags. 25. júlí 2011, tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Kópaskeri í Norðurþingi um úthlutun byggðakvóta til einstakra báta en þar kom fram að með ákvörðunum Fiskistofu hafi verið gerðar breytingar á úthlutun til einstakra báta í byggðarlaginu vegna úrskurðar ráðuneytisins, dags. 14. júlí 2011. Kæranda var tilkynnt að við þá úthlutun myndu koma 13.020 þorskígildiskíló í hlut bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650).


Engar stjórnsýslukærur bárust ráðuneytinu vegna framangreindra ákvarðana Fiskistofu, dags. 25. júlí 2011.


Með bréfum, dags. 4. og 11. nóvember 2011, tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Kópaskeri í Norðurþingi um endurúthlutun byggðakvóta í byggðarlaginu. Kæranda var tilkynnt að 13.020 þorskígildiskíló hafi verið ætluð bátnum Þingey ÞH-51 (1650). Báturinn hafði þann 31. ágúst 2011 landað 8.366 þorskígildiskílóum og hafði því uppfyllt skilyrði fyrir að fá úthlutað 4.183 þorskígildiskílóum. Einnig kom þar fram að þeim 8.837 þorskígildiskílóum sem eftir voru yrði úthlutað til annarra skipa í byggðarlaginu.


Þá kom fram í ákvörðunum Fiskistofu að þær væru kæranlegar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindum tilkynningum Fiskistofu um úthlutun eða höfnun umsókna um úthlutun.


Ráðuneytinu bárust stjórnsýslukærur vegna framangreindrar endurúthlutunar byggðakvóta á Kópaskeri í Norðurþingi. Samkvæmt ákvörðun ráðuneytisins, dags. 2. janúar 2012, var endurúthlutun byggðakvóta í byggðarlaginu frestað þar til afgreiðslu á stjórnsýslukærunum væri lokið en með bréfi, dags. 1. mars 2012, var tilkynnt um að afgreiðslu á stjórnsýslukærum væri lokið og að úthlutun gæti farið fram.


Hinn 6. mars 2012 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta í Norðurþingi um breytingar á úthlutun byggðakvóta til tiltekinna báta á Kópaskeri, á grundvelli framangreinds úrskurðar ráðuneytisins, dags. 1. mars 2012. Kæranda var tilkynnt að báturinn Þingey ÞH-51 (1650) myndi fá úthlutað 4.183 þorskígildiskílóum en samkvæmt því var óbreytt eldri ákvörðun Fiskistofu um úthlutun til bátsins, dags. 11. nóvember 2011.


Þá kom fram í ákvörðunum Fiskistofu að þær væru kæranlegar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindum tilkynningum Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta.


Með tölvubréfi frá 15. mars 2012 óskaði kærandi eftir að byggðakvóti sem úthlutað hafði verið til bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650) með framangreindri ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2012, yrði fluttur til kæranda, Sjóferða Arnars ehf. Í beiðninni kemur fram að byggt sé á því að kærandi hafi "tapað bátnum í dómsmáli".


Með bréfi, dags. 27. mars 2012, hafnaði Fiskistofa kröfu kæranda málinu en í umræddri ákvörðun Fiskistofu segir m.a. að með bréfi Fiskistofu, dags. 6. mars 2012, hafi verið tilkynnt um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650). Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 999/2010, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011, væri kveðið á um að úthlutun aflamarks skuli vera til fiskiskipa. Af þessu leiði að ekki sé heimilt að úthluta byggðakvóta til einstaklinga eða lögaðila.


Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri þrír mánuðir frá því að kæranda barst tilkynning um ákvörðunina, sbr.1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Málsrök í stjórnsýslukæru o.fl.

Með stjórnsýslukæru, dags. 25. júní 2012, sem barst ráðuneytinu 27. sama mánaðar, kærði kærandi, Arnar Sigurðsson f.h. Sjóferða Arnars ehf., framangreinda ákvörðun Fiskistofu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.


Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að starfsmenn Fiskistofu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins hafi ekki svarað fyrirspurnum frá kæranda, sem hann hafi sent með tölvubréfum eða leiðbeint kæranda samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


Með stjórnsýslukærunni fylgdu gögn um tölvubréfasamskipti kæranda og starfsmanna Fiskistofu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, o.fl.


Með bréfum, dags. 28. júní og 3. júlí 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.


Í umsögn Fiskistofu, dags. 5. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu 6. sama mánaðar, segir m.a. að með bréfi Fiskistofu, dags. 4. nóvember 2011, sbr. einnig bréf, dags. 11. sama mánaðar, hafi aðila málsins verið tilkynnt að úthlutað yrði tilteknum aflaheimildum af byggðakvóta Kópaskers til bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650) og þar hafi verið gerð grein fyrir forsendum úthlutunarinnar. Í gögnum málsins komi fram að erindum kæranda hafi verið svarað, sbr. m.a. tölvubréf frá fiskistofustjóra, dags. 18. maí 2012. Af framangreindu sé ljóst að málsástæður kæranda í stjórnsýslukæru eigi ekki við rök að styðjast. Með bréfi Fiskistofu til kæranda, dags. 27. mars 2012, og í tilefni af tölvubréfi hans til stofnunarinnar frá 15. sama mánaðar hafi honum verið tilkynnt að samkvæmt reglum sem giltu um úthlutun byggðakvóta væri ekki hægt að breyta ákvörðun stofnunarinnar um úthlutun byggðakvóta, þar sem aflamarki væri úthlutað til fiskiskipa en ekki til einstaklinga eða lögaðila.


Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdu ýmis gögn, m.a. ljósrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. mars 2012, tölvubréfum o.fl.


Með bréfi, dags. 10. júlí 2012, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu og veitti honum kost á að gera athugasemdir við hana. Frestur til þess var veittur til og með 25. júlí 2012.


Með bréfi, dags. 20. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu 24. sama mánaðar, bárust ráðuneytinu athugasemdir kæranda við framangreinda umsögn Fiskistofu en þar segir m.a. að kærandi hafi ekki óskað eftir að fá úthlutað byggðakvótanum heldur hafi hann óskað eftir að byggðakvótanum yrði úthlutað til annars báts en samkvæmt því telji kærandi það ekki rétt sem komi fram í umsögn Fiskistofu, dags. 5. júlí 2012.

 

Rökstuðningur

I. Með bréfi, dags. 25. júní 2012, sem barst ráðuneytinu 27. sama mánaðar, var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, og tók úrskurðurinn gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.


II. Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.


Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 999/2010, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011, með síðari breytingum. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2010 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2010. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskatttstjóra.


Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags miðað við landaðan afla í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu frá 1. september 2009 til 31. ágúst 2010. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður úthlutun til þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.


Þá eru í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 og 6. gr. reglugerðar nr. 999/2010 ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi afla sem nemur a.m.k. tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt.


Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Norðurþingi, m.a. á Kópaskeri fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (I) nr. 126/2011, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Þar kemur fram m.a. að ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist á þann veg að skip skuli hafa verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. febrúar 2011. Einnig breyttist ákvæði c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar á þann veg að þar kemur fram að skip skuli hafa verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. febrúar 2011. Þá voru gerðar tilteknar breytingar á 6. gr. reglugerðarinnar. Umrædd skilyrði hafa ekki áhrif á niðurstöðu þessa máls.


Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Kópaskeri í Norðurþingi fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 999/2010 og auglýsingu (I) nr. 126/2011.


III. Í máli þessu er þess krafist að aflaheimildir sem úthlutað var sem byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650) verði fluttar af bátnum og að kæranda, sem er lögaðili verði veitt heimild til að veiða afla á grundvelli aflaheimildanna. Umrædd krafa er byggð á því að kærandi sé ekki lengur eigandi bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650) þar sem ekki hafi verið viðurkenndur í dómsmáli eignarréttur hans að bátnum.


Samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og 1. gr. reglugerðar nr. 999/2010, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011, sem gildir um meðferð þessa máls, er byggðakvóta úthlutað til fiskiskipa. Engin heimild er í framangreindum ákvæðum 10. gr. laga nr. 116/2006 eða reglugerðar nr. 999/2010 til að flytja byggðakvóta sem úthlutað var fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650) af bátnum með þeim hætti sem krafist er í stjórnsýslukæru í máli þessu.


Þá hefur kærandi ekki óskað eftir því við meðferð málsins að umræddar aflaheimildir verði fluttar á annan tilgreindan bát og ekki framvísað eignarheimild eða þinglýstum leigusamningi um annan bát á því tímabili sem úthlutun byggðakvótans fór fram, sbr. framangreind ákvæði c-liðar 1. gr. reglugerðar nr. 999/2010 og auglýsingar (I) nr. 126/2011.


Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. mars 2012, um að hafna kröfu kæranda um að aflaheimildir sem úthlutað var sem byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Þingeyjar ÞH-51 (1650) verði fluttar af bátnum Þingey ÞH-51 (1650).


Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. mars 2012, um að hafna kröfu kæranda, Sjóferða Arnars ehf., um að aflaheimildir sem úthlutað var sem byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 til bátsins Þingeyjar ÞH-51, skipaskrárnúmer 1650, verði fluttar af bátnum Þingey ÞH-51 (1650).


Fyrir hönd ráðherra


Ingvi Már Pálsson.

Sigríður Norðmann.



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum