Hoppa yfir valmynd

Útgerðarfélagið Nesið ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76, (2102).

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Freys Steinars Gunnlaugssonar f.h. Útgerðarfélagsins Nesið ehf., ódags. sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi frá 27. desemmber 2013, og einnig með pósti 30. sama mánaðar, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76, skipaskrárnúmer 2102.

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta af byggðakvóta Ólafsfjarðar í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102) í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingum, dags. 8. og 22. nóvember 2013, sem birtar voru í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 9. og 23. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 í nokkrum byggðarlögum, m.a. Fjallabyggð en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, með síðari breytingum. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 9. desember 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneytið hafði þá úthlutað 440 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Fjallabyggðar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 664/2013, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2013/2014 sem skiptust á byggðarlögin Siglufjörð, 140 þorskígildistonn og Ólafsfjörð 300 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Fjallabyggð með bréfi, dags. 16. október 2013.

Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Oddverja ÓF-76 (2102) með umsókn til Fiskistofu, dags. 10. nóvember 2013.

Hinn 18. desember 2013 tilkynnti Fiskistofa kæranda ákvörðun sína um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að samkvæmt staflið b 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014 væri það skilyrði fyrir úthlutun til skips að það hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi þann 1. júlí 2013. Þar sem skipið Oddverji ÓF-76 (2102) hafi verið skráð á Hellissandi á þeim tíma, komi ekki til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.

Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.

 

Málsrök í stjórnsýslukæru

Með stjórnsýslukæru, ódags. sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi frá 27. desember 2013, og einnig með pósti 30. sama mánaðar, kærði Freyr Steinar Gunnlaugsson f.h. Útgerðarfélagsins Nesið ehf. til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102).

Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að Útgerðarfélagið Nesið ehf. sé með tvo báta í rekstri, Odd á Nesi SI-76 (2799) og Oddverja ÓF-76 (2102) og hafi verið sótt um byggðakvóta fyrir þá báða á réttum tíma. Kærandi hafi keypt bátinn Oddverja ÓF-76 (2102) í ágúst 2013 sem komi í stað annars báts, Ugga ÓF-167 (6952). Sá bátur hafi áður verið með nafnið Bára SH-27 (2102) og sé frá Hellissandi en eftir kaupin hafi báturinn fengið nafnið Oddverji ÓF-76 (2102). Engin viðmiðun sé til fyrir úthlutun byggðakvóta í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102). Óskað sé eftir að endurreiknaður verði byggðakvóti Ólafsfjarðar í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 og að Oddverji ÓF-76 (2102) fái úthlutað byggðakvóta sem annars hefði verið úthlutað til Ugga ÓF-167 (6952) en umræddur bátur sé nú í eigu Hjallasands ehf.

Með bréfi, dags. 2. janúar 2014, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun, auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

Í umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins, dags. 23. janúar 2014, segir m.a. að samkvæmt ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, hafi báturinn Oddverji ÓF-76 (2102) ekki uppfyllt skilyrði stafliðar b 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, þar sem skipið hafi ekki verið skráð í Fjallabyggð 1. júlí 2013. Ekki sé véfengt í kærunni að umræddur bátur hafi verið skráður á Hellissandi 1. júlí 2013. Í stjórnsýslukærunni séu rakin viðskipti með ofangreindan bát og að hann hafi komið frá Hellissandi og í stað annars báts útgerðarinnar en Fiskistofa telji að staðfesta eigi ákvörðun stofnunarinnar.

Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, 2) yfirlit um úthlutun byggðakvóta á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014, 3) umsókn Útgerðarfélagsins Nesið ehf. um byggðakvóta til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102), dags. 10. nóvember 2013 og 4) samningur um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014, dags. 29. nóvember 2013.

Með bréfi, dags. 24. janúar 2014, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af umsögn Fiskistofu, dags. 23. janúar 2014, og veitti félaginu kost á að gera athugasemdir við umsögnina.

Með bréfi, dags. 13. febrúar 2014, bárust ráðuneytinu athugasemdir kæranda f.h. Útgerðarfélagsins Nesið ehf. en þar segir einnig að Útgerðarfélagið Nesið ehf. hafi átt bátinn Ugga ÓF-167 með skipaskrárnúmerinu 6952, sem hafi verið með veiðiheimildir og gerður út frá Siglufirði í Fjallabyggð. Sumarið 2013 hafi báturinn verið endurnýjaður og í staðinn komið báturinn Oddverji ÓF-76 með skipaskrárnúmerinu 2102. Allar aflaheimildir hafi verið fluttar af eldri bátnum yfir á þann nýja, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013 komi fram að réttindi til úthlutunar byggðakvóta fylgi skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hafi endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram komi 1. mgr. og flutt aflaheimildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið geti hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflaheimildum sem hafa verið fluttar milli skipanna. Óskað sé eftir að ráðuneytið endurskoði úthlutun byggðakvóta fyrir bátinn Oddverja ÓF-76 (2102), þar sem ljóst sé að báturinn uppfylli öll skilyrði reglugerðarinnar en hins vegar hafi misfarist við umsóknina að láta þess getið að Útgerðarfélagið Nesið ehf. hafði endurnýjað bát á umræddu tímabili.

 

Rökstuðningur

Um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. 10. gr. laganna er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.

Á grundvelli þessa ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, með síðari breytingum. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á umræddu fiskveiðiári en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Einnig koma fram í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að skipting þess aflamarks sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skuli að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur úthlutun til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.

Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr., o.fl.

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.

Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Fjallabyggð, þ.m.t. á Ólafsfirði fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 með auglýsingu (I) nr. 990/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.

Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Ólafsfirði í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 665/2013 og auglýsingu (I) nr. 990/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

Í staflið b 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, er skilyrði fyrir úthlutun til skips að það hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi þann 1. júlí 2013.

Báturinn Oddverji ÓF-76 (2102) var skráður á Hellissandi í Snæfellsbæ á framangreindu tímamarki.

Í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013 kemur fram að réttindi til úthlutunar fylgi skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. reglugerðarinnar, hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. 4. gr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.

Í stjórnsýslukærunni er byggt á því að kærandi hafi endurnýjað fiskiskip sitt á því tímabili sem kemur fram í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013, þ.e. á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013.

Ákvæði 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014 verður að skýra á þann veg að sá sem endurnýjar fiskiskip sitt skuli vera sá sem sækir um byggðakvóta á grunvelli ákvæðisins.

Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytinu hafa borist frá Fiskistofu var báturinn Uggi ÓF-167 (6952) ekki í eigu kæranda, Útgerðarfélagsins Nesið ehf. Báturinn var hins vegar í eigu annars einkahlutafélags, þ.e. einkahlutafélagsins BG nes ehf. til 9. ágúst 2013, þegar hann var seldur til Hjallasands hf. á Snæfellsnesi og hlaut nafnið Bára SH-27 (6952). Jafnframt keypti BG nes ehf. þann 8. ágúst 2013 bátinn Oddverja ÓF-76 (2102) af Hjallasandi hf. og var báturinn eftir það gerður út frá Ólafsfirði í Fjallabyggð. Útgerðarfélagið Nesið ehf. tók bátinn á leigu með leigusamningi, dags. 26. júlí 2013, sem gerður var við BG nes ehf. og var innfærður í þinglýsingabækur 14. október 2013.

Kærandi, Útgerðarfélagið Nesið ehf. var samkvæmt framanrituðu hvorki eigandi bátsins Ugga ÓF-167 (6952) þegar hann var seldur til Hellissands í Snæfellsbæ á árinu 2013 og kærandi er heldur ekki eigandi bátsins Oddverja ÓF-76 (2102).

Eigandi bátsins Oddverja ÓF-76 (2102) hefur ekki óskað eftir að réttur eldri bátsins Ugga ÓF-167 (6952) til úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 verði fluttur til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102).

Í framangreindum leigusamningi aðila um bátinn Oddverja ÓF-76 (2102), dags. 26. júlí 2013, er tekið fram í upphafi leigusamningsins að skipið sé leigt án alls aflamarks. Ekkert kemur heldur fram í leigusamningnum um að leigutaki eigi rétt til úthlutunar byggðakvóta til bátsins á fiskveiðiárinu 2013/2014.

Þá komu ekki fram í umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102), dags. 10. nóvember 2013, upplýsingar um að um væri að ræða endurnýjun eldri báts og að óskað væri eftir að tekið yrði tillit til afla eldri bátsins eins og áskilið er í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Útgerðarfélagsins Nesið ehf., um úthlutun af byggðakvóta Ólafsfjarðar í Fjallabyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76 (2102).

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Útgerðarfélagsins Nesið ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Oddverja ÓF-76, skipaskrárnúmer 2102.


Fyrir hönd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Jóhann Guðmundsson

Sigríður Norðmann



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum