Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 601/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 2. nóvember 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 601/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17090050

Kæra […]

og barns hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 26. september 2017 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 21. september 2017 um að synja kæranda og barni hennar, […], fd. […], um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi sótti um vernd hér á landi ásamt eiginmanni sínum og barni.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og kæranda og barni hennar verði veitt staða flóttamanns, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og kæranda og barni hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að umsókn hennar verði ekki talin bersýnilega tilhæfulaus og að hin kærða ákvörðun um brottvísun og endurkomubann verði felld úr gildi, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt hér á landi þann 21. september 2017. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 21. september 2017 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum dags. 21. september 2016 synjaði Útlendingastofnun kæranda og barni hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála þann 26. september 2017. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 16. október 2017.

Umsókn kæranda sætti forgangsmeðferð á grundvelli 1. tölul. b-liðar 1. mgr. 29. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 29. gr. laganna. Ákvörðun Útlendingastofnunar var tekin án samhliða rökstuðnings með vísan til 1. mgr. 48. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum. Kærandi óskaði eftir eftirfarandi rökstuðningi fyrir ákvörðun stofnunarinnar. Kærunefnd útlendingamála barst eftirfarandi rökstuðningur í samræmi við 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 48. gr. reglugerðar um útlendinga, þann 9. október 2017.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun byggði hún umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að ótilgreindir aðilar í heimaríki hennar hafi reynt að þvinga fjölskyldu hennar til að láta af hendi hótelrekstur þeirra. Þau geti ekki sannað brotin fyrir lögreglu í heimaríki og því geti lögregla ekki veitt þeim aðstoð.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og henni skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kæranda, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn barns kæranda væri grundvölluð á framburði foreldra þess og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnsins og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þess, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að barni kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. Barni kæranda var vísað frá landinu.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kæranda ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að ástæða flótta hennar og fjölskyldu hennar sé sú að líf þeirra sé í hættu í heimaríki. Kærandi kveðst hafa verið í hótelrekstri í heimaríki sínu og hafi samkeppnisaðili reynt að kaupa af þeim reksturinn en þau hafi neitað því. Þá hafi verið lagðir ósanngjarnir skattar á eign þeirra til þess að þvinga þau til að selja eignina. Ofangreindir aðilar hafi einnig hótað þeim og þvingað bifreið þeirra útaf veginum með þeim afleiðingum að kærandi og fjölskylda hennar hafi lent í bílslysi. Kærandi kveðst hafa kært málið til lögreglunnar en hún hafi ekki getað verndað hana eða fjölskyldu hennar vegna skorts á sönnunargögnum. Kærandi hafi farið með málið fyrir dómstóla en ökumaður bílsins hafi aðeins fengið lága sekt fyrir athæfið. Kærandi sé sannfærð um að hótanir og ofbeldi muni halda áfram snúi þau til heimaríkis og lögreglan þar geti ekki verndað fjölskylduna.

Í greinargerð er fjallað almennt um ástand mannréttindamála í […]. Kærandi vísar m.a. til þess að helstu mannréttindabrotin í […] séu m.a. ólöglegar athafnir og ofbeldi í tengslum við kosningar. Einnig séu talsverðir annmarkar á réttarkerfinu, þ.m.t. þrýstingur á dómstóla í tilteknum málum, vafasamar skipanir á dómurum, ósamræmi í viðbrögðum yfirvalda í tengslum við ofbeldi eða misnotkun og ófullnægjandi sakamálarannsóknir. Þá séu aðstæður í fangelsum landsins slæmar, misnotkun sé til staðar af hálfu starfsmanna löggæslustofnana, spilling sé innan stjórnkerfisins og skert funda- og félagafrelsi.

Til stuðnings aðalkröfu sinni um alþjóðlega vernd vísar kærandi til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og skilgreiningar á flóttamannahugtakinu, sbr. A-lið 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Þá vísar kærandi til skilgreiningar handbókar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um hugtakið ofsóknir í skilningi 33. gr. flóttamannasamningsins og skilgreiningu á hugtakinu í ákvæðum 38. gr. laga um útlendinga. Auk þess er í greinargerð fjallað um hugtakið ástæðuríkur ótti við ofsóknir, sbr. skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til vara krefst kærandi þess að henni og barni hennar verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu dvalarleyfis á þeim grundvelli geti útlendingur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærandi vísar til greinargerðar með frumvarpi til laganna en þar komi fram að með almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Heildarmat skuli fara fram á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt. Með hliðsjón af framangreindri umfjöllun um aðstæður kæranda og yfirvöld í heimaríki telji kærandi skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar brottvísun og endurkomubann verði felld úr gildi. Í greinargerð er ferli málsins hjá stofnuninni varðandi beitingu brottvísunar og endurkomubanns rakið. Þar kemur m.a. fram að kæranda hafi verið gefinn kostur á að veita andmæli og að hún hafi komið andmælum sínum á framfæri. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi verið óheimilt að ákveða að kæranda skyldi ekki veittur frestur til að hverfa brott af landinu með vísan til b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og 45. gr. reglugerðar nr. 540/2017 um útlendinga og meta umsókn hennar bersýnilega tilhæfulausa. Þá telur kærandi að af hraða ákvörðunar Útlendingastofnunar að dæma hafi stofnunin ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni þegar umsókn kæranda hafi verið metin bersýnilega tilhæfulaus. Enn fremur hafi stofnuninni verið óheimilt að ákvarða kæranda brottvísun með vísan til 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá sé ákvörðun um endurkomubann í andstöðu við 1. mgr. 33. gr. flóttamannasamningsins. Jafnframt sé brottvísun og endurkomubann kæranda í andstöðu við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og vitnar kærandi til athugasemda við ákvæðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum máli sínu til stuðnings. Kærandi vísar jafnframt í upplýsingar á heimasíðu Útlendingastofnunar og bendir á að svo virðist sem ákvörðun stofnunarinnar um endurkomubann kæranda hafi ekki tengst atvikum í máli kæranda sjálfs, heldur hafi hún verið hluti af því markmiði stjórnvalda að sporna við komu fólks í leit að alþjóðlegri vernd á Íslandi. Stofnunin hafi ekki tekið tillit til hagsmuna og réttinda kæranda líkt og áskilið sé. Einnig sé ljóst að völ hafi verið á fleiri úrræðum til að ná tilsettu markmiði, sem geti talist vægari í garð kæranda. Útlendingastofnun hafi t.a.m. heimild til að veita kæranda styttri frest en sjö daga, sbr. 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, í stað þess að veita henni engan frest með vísan til sömu málsgreinar. Hefði stofnunin farið þá leið hefði ekki komið til endurkomubanns, skv. b-lið 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að markmiði ákvörðunarinnar hefði verið náð án þess að synja kæranda um slíkan frest og með synjuninni hafi stofnunin gerst brotleg við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Með vísan til þess að meðalhófs hafi ekki verið gætt við töku hinnar kærðu ákvörðunar um brottvísun og endurkomubann sé hún haldin annmörkum og beri að fella ákvörðunina úr gildi hvað þann þátt varðar. Með því að rannsaka ekki til hlítar hvort aðrar leiðir teldust færar að markmiði hinnar kærðu ákvörðunar hafi Útlendingastofnun enn fremur gerst brotleg við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga.

Þá telur kærandi að ákvæði 49. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, ásamt áorðnum breytingum, sé í andstöðu við lög um útlendinga. Í ákvæðinu sé fjallað um réttaráhrif synjunar bersýnilega tilhæfulausrar umsóknar. Kærandi telur að ákvæðið eigi sér ekki stoð í lögum um útlendinga þar sem ekki sé að finna heimild til handa ráðherra til að ákveða með reglugerð að íþyngja einstökum hópum fólks meira en öðrum við ákvörðun brottvísunar og endurkomubanns.

Kærandi telur jafnframt að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi bendir á að hún hafi fengið ákvörðun í máli sínu skömmu eftir að viðtalinu hafi lokið og að líklegast hafi texti ákvörðunarinnar verið skrifaður áður en viðtalið hafi átt sér stað. Kærandi telur að þrátt fyrir að hún komi frá […], sem sé á lista Útlendingastofnunar yfir örugg ríki, þurfi að framkvæma persónubundna rannsókn á aðstæðum hennar. Þá vísar kærandi í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli ríkisborgara […] þar sem veitt hafi verið viðbótarvernd skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna persónubundinna ofsókna.

Kærandi áréttar í greinargerð að í 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga komi fram að það sem barni sé fyrir bestu skuli haft að leiðarljósi. Þá vísar kærandi til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tilskipunar Evrópubandalagsins nr. 2011/95/ESB máli sínu til stuðnings. Kærandi telur að í ljósi þeirra aðstæðna sem bíði kæranda og fjölskyldu hennar verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis sé ljóst að það sé börnunum fyrir bestu að fjölskyldunni verði veitt vernd hérlendis.

Að lokum bendir kærandi á að við mat á möguleika á flótta innanlands beri að líta til þess hvort slíkur flutningur geti talist viðeigandi úrræði og hvort krafan sé sanngjörn. Þá þurfi að fara fram einstaklingsbundið mat í hverju tilviki fyrir sig og almennt séu ekki forsendur til þess að kanna möguleika á flótta innan heimaríkis ef ljóst sé að ríkið skorti vilja eða getu til að vernda einstaklinga gegn ofsóknum. Kærandi hafi greint frá því að hún og fjölskylda hennar séu ekki örugg annars staðar í heimaríki sínu. Andstæðingar þeirra ógni henni og fjölskyldu hennar og geti fundið þau hvar sem er í heimaríki. Kærandi telji að flutningur innan heimaríkis muni ekki leysa þau undan þeirri ógn sem þau búi við í […] og því sé ljóst að slíkur flutningur sé hvorki raunhæfur né sanngjarn fyrir þau.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Með úrskurði nr. 600/2017 ákvað kærunefnd útlendingamála að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli eiginmanns kæranda og föður barns hennar úr gildi og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til meðferðar að nýju.

Að mati kærunefndar eru þeir verulegu og alvarlegu annmarkar á meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun þess eðlis að þeir hefðu getað haft áhrif á niðurstöðu í máli kæranda og barns hennar.

Í því ljósi og með vísan til rökstuðnings í úrskurði í máli eiginmanns kæranda telur kærunefnd rétt að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar úr gildi og leggja fyrir stofnunina að taka málið til meðferðar að nýju.

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka málin til meðferðar að nýju.

The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellant and her child are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case of the appellant and her child.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum