Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 57/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 57/2015

Föstudaginn 9. september 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með tölvupósti 31. ágúst 2015 kærir A til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2015, um innheimtu ofgreiddra bóta.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun frá 18. febrúar 2013 til 28. júní 2013. Samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta var kærandi í hlutastarfi en tilkynnti Vinnumálastofnun um tekjur sínar eftir á þar sem hún var í breytilegu starfshlutfalli. Vegna framangreindra tekna fékk kærandi greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á og því myndaðist endurgreiðslukrafa á hendur henni. Með innheimtubréfi, dags. 24. ágúst 2015, fór Vinnumálastofnun þess á leit við kæranda að hún greiddi skuld að fjárhæð 230.833 kr., ásamt 15% álagi, vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. mars 2013 til 31. maí 2013.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 31. ágúst 2015. Með bréfi, dags. 1. september 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 30. nóvember 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. desember 2015, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi starfað í óreglulegu hlutastarfi sem [...] á tímabilinu 1. mars 2013 til 31. maí 2013. Samið hafi verið um að hún myndi skila til  Vinnumálastofnunar upplýsingum um unnar vinnustundir í lok hvers mánaðar og það hafi hún gert samviskusamlega. Kærandi tekur fram að hún hafi farið í einu og öllu eftir því sem óskað hafi verið eftir og því komi innheimtan henni í opna skjöldu. Kærandi geti ekki borið ábyrgð á útreikningum Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 18. febrúar 2013 til 28. júní 2013. Áður hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 9. júlí 2011 til 23. júlí 2012 og í lok þess tímabils hafi kærandi skuldað Vinnumálastofnun 61.808 kr. vegna ofgreiddra bóta. Sú skuld hafi verið ógreidd í febrúar 2013. Tekið er fram að kærandi hafi átt inni 16 daga í orlof frá fyrrum vinnuveitanda og því hafi hún verið skráð í orlof frá 18. febrúar til 11. mars 2013. Kærandi hafi einnig starfað sem [...] í breytilegu starfshlutfalli og tilkynnt um tekjur sínar eftir á eða í upphafi hvers mánaðar vegna næstliðins mánaðar. Vinnumálastofnun hafi þá endurreiknað fjárhæð atvinnuleysisbóta til kæranda með hliðsjón af tekjum hennar og því hafi myndast skuld við stofnunina. Í ágúst 2015 hafi skuld kæranda við Vinnumálastofnun enn verið ógreidd og því hafi stofnunin sent kæranda innheimtubréf þar sem skorað hafi verið á hana að greiða skuld sína að fjárhæð 265.458 kr. innan 90 daga. Þann 28. ágúst 2015 hafi skuld kæranda verið endurreiknuð þar sem ranglega hafi verið lagt 15% álag á skuld hennar. Þá hafi heildarskuld kæranda við Vinnumálastofnun staðið í 230.830 kr.

Vinnumálastofnun tekur fram að í málinu liggi fyrir að kærandi hafi fengið greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins á tímabilinu 9. júlí 2011 til 23. júlí 2012 auk launatekna frá mars til maí 2013 samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Þær greiðslur hefðu iðulega numið hærri fjárhæð en framlögð tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir og því hefðu bætur hennar verið skertar afturvirkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Vegna þessa hafi myndast skuld í greiðslukerfi Vinnumálastofnunar og kæranda beri að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar bætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

Vinnumálastofnun bendir á að 15% álag á skuld kæranda hafi verið fellt niður þar sem stofnunin telji að kærandi beri ekki ábyrgð á þeim annmörkum sem hefðu leitt til þess að hún hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun sé hins vegar skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006, óháð ástæðu ofgreiðslunnar. Samkvæmt öllu framangreindu telji Vinnumálastofnun að rétt hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 230.833 kr. ásamt 15% álagi.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna. Í 1. mgr. 36. gr. segir meðal annars að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu og elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá segir í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í 35. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um tilhögun greiðslna atvinnuleysisbóta. Þar segir að atvinnuleysisbætur skuli greiddar fyrsta virka dag hvers mánaðar og þær skuli greiddar eftir á fyrir undanfarandi mánuð eða hluta úr mánuði þannig að miðist við fyrsta til síðasta dag viðkomandi mánaðar. Óumdeilt er að kærandi var í hlutastarfi samhliða því að hún fékk greiddar atvinnuleysisbætur og að hún tilkynnti Vinnumálastofnun um tekjur sínar eftir á þar sem hún var í breytilegu starfshlutfalli. Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir tekjuáætlun vegna starfsins heldur skilaði kærandi launaseðlum til Vinnumálastofnunar fyrir hvern mánuð eftir að stofnunin hafði greitt henni atvinnuleysisbætur. Í framhaldinu endurreiknaði Vinnumálastofnun atvinnuleysisbætur kæranda og birti niðurstöðuna í samskiptakerfi Vinnumálastofnunar, „mínum síðum“, sem kærandi hafði aðgang að og var í reglulegu sambandi við stofnunina með þeim hætti. Ljóst er að kæranda var tilkynnt um ofgreiðsluna við uppgjör hvers mánaðar í samskiptakerfi Vinnumálastofnunar og hver skuld hennar væri við stofnunina á hverjum tíma. Þá var einnig vísað til þess að frekari upplýsingar kæmu fram á greiðsluseðli. Það er mat úrskurðarnefndar velferðarmála að Vinnumálastofnun hafi komið upplýsingum um stöðu málsins á framfæri við kæranda og hefði henni því átt að vera fullkunnugt um að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Hins vegar skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í máli þessu hefur Vinnumálastofnun fallið frá kröfu um 15% álag og er því ekki ágreiningur um það atriði.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2015, í máli A um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta að fjárhæð 230.833 kr. er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum