Hoppa yfir valmynd

Nr. 407/2017 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júlí 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 407/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17050036

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. maí 2017 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. maí 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Hollands.Kærandi krefst þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 1. mgr. 36. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sbr. 2. mgr. 36. gr. sömu laga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. febrúar 2017. Þar sem kærandi hafði fengið vegabréfsáritun útgefna af hollenskum yfirvöldum var, þann 2. mars 2017, beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Hollandi, sbr. 2. og 3. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 20. apríl 2017 barst svar frá hollenskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 4. maí 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Hollands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 22. maí 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 1. júní 2017. Í greinargerð óskaði kærandi eftir því að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Hollands. Lagt var til grundvallar að Holland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Hollands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Hollands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi unnið alla ævi í byggingariðnaði þangað til að hann hafi verið gerður gjaldþrota af hálfu stjórnvalda í […] og brottrækur úr byggingariðnaðinum þar í landi. Megi rekja það til spillingarmála í […]. Hann hafi verið settur á svartan lista hjá […] stjórnvöldum og geti því ekki fengið neina vinnu í […]. Kærandi kveðst hafa undir höndum gögn sem sanni það að hann hafi verið settur á svartan lista af hálfu stjórnvalda.

Í greinargerð kæranda kemur jafnframt fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að heilsufar hans væri […]. Kærandi tekur fram að hann hafi ekki viljað sýna á sér veikar hliðar og hafi þess vegna ekki sagt frá heilsufarsvandamálum sínum. Þá hafi hann haldið að það gæti haft slæm áhrif á umsókn hans um alþjóðlega vernd. Kærandi greinir frá því að hann hafi verið […] síðan árið 2002. […]. Meiðslin hafi alla tíð síðan hrjáð hann mjög mikið og hann hafi þurft að nota verkjalyf nánast stanslaust síðan hann hafi meiðst. Þá er í greinargerð kæranda greint frá því að hann hafi í fjölda ára verið í sambúð með konu í […] og að hann kæri sig ekki um að vera aðskilinn frá henni. Í greinargerð er tekið fram að þrátt fyrir að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun sagt að betra væri að vera sendur til […] en Hollands þá hafi hann fyrst og fremst verið að hugsa til þess að hann vildi ekki vera fjarverandi sambýliskonu sinni sem búi í […].

Kærandi fer fram á að kærunefnd taki til skoðunar hvort að nýr samningur milli Evrópusambandsins og […] geri það að verkum að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi skv. 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samningurinn hafi tekið gildi nýlega og tryggi íbúum […] frjáls ferðalög inn á Schengen-svæðið, þ.e. þeir þurfi ekki lengur vegabréfsáritun vilji þeir koma til Íslands. Þá sé […] ekki lengur á lista Útlendingastofnunar yfir þau ríki hvers ríkisborgarar séu skyldaðir til að hafa vegabréfsáritun við komu til landsins. Kærandi heldur því fram að vegna þess að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi og kvöð um vegabréfsáritun sé nú fallin niður, beri Ísland ábyrgð á umsókn hans um alþjóðlega vernd. Kærandi vísar í 2. mgr. 14. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar máli sínu til stuðnings.

Fallist nefndin ekki á framangreint telur kærandi að taka beri mál hans til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga segi m.a. að sérstakar ástæður geti verið þær að einstaklingur sé í viðkvæmri stöðu vegna heilsufars.

Jafnframt kemur fram í greinargerð kæranda að stefna hollenskra stjórnvalda í málefnum flóttamanna hafi legið undir umtalsverðri gagnrýni fyrir að vera óþarflega hörð og í andstöðu við alþjóðleg lágmarksskilyrði. Kærandi gerir m.a. grein fyrir aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi og að samtökin Amnesty International hafi m.a. gert alvarlegar athugasemdir við lokaðar móttökumiðstöðvar og notkun einangrunarklefa fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá hafi samtökin m.a. fordæmt slæman aðgang að aðstoð lögfræðinga. Þá sé erfitt fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að fá vinnu í Hollandi. Kærandi telur að heilsufar hans, samtvinnað við aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi, geri það að verkum að sérstakar ástæður leiði til þess að taka skuli máls hans til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi vísar þá í ákvæði 42. gr. laga um útlendinga og bendir á að á árinu 2016 hafi 96% umsókna […] í Hollandi verið hafnað. Þá sé […] á lista yfir örugg ríki í Hollandi. Því megi telja líklegt að málsmeðferð kæranda í Hollandi endi með því að hann verði sendur til […].

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að hollensk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Hollands er byggt á því að kærandi sé með gilda vegabréfsáritun í Hollandi.

Í greinargerð kemur fram sú afstaða kæranda að ákvæði 2. mgr. 14. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar eigi við í máli hans. Í ákvæði 1. mgr. 14. gr. er kveðið á um að komi ríkisborgari þriðja lands eða ríkisfangslaus einstaklingur inn á yfirráðasvæði aðildarríkis, þar sem kvöð um vegabréfsáritun hefur verið felld niður, beri það aðildarríki ábyrgð á meðferð umsóknar viðkomandi um alþjóðlega vernd. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að meginreglan í 1. mgr. gildi ekki ef ríkisborgari þriðja lands eða ríkisfangslaus einstaklingur leggur fram umsókn um alþjóðlega vernd í öðru aðildarríki þar sem kvöð um að viðkomandi hafi vegabréfsáritun til að komast inn á yfirráðasvæðið hefur einnig verið felld niður. Í því tilviki skuli síðarnefnda aðildarríkið bera ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Kærandi telur að af ákvæðinu leiði að vegna þess að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi og kvöð um vegabréfsáritun sé nú fallin niður, beri Ísland ábyrgð á umsókn hans um alþjóðlega vernd.

Kærunefnd áréttar að samkvæmt gögnum máls sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi þann 23. febrúar 2017. Beiðni um viðtöku hans var send til Hollands þann 2. mars 2017 og þann 20. apríl 2017 samþykkti Holland endurviðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd bendir á að reglugerð sú sem tryggir ríkisborgurum […] frjálsa för inn á Schengen-svæðið hafi tekið gildi í […]. Hún hafi því ekki verið í gildi þegar kærandi hafi komið til landsins og sótt um alþjóðlega vernd þann 23. febrúar sl. Í 1. mgr. 7. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar er kveðið á um að viðmiðunum, til að ákvarða hvaða aðildarríki beri ábyrgð, skuli beitt í þeirri röð sem þær eru settar fram í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar. Í 2. mgr. 7. gr. er síðan kveðið á um að ákvarða skuli hvaða aðildarríki beri ábyrgð í samræmi við viðmiðanirnar sem eru settar fram í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar á grundvelli þeirrar stöðu sem var þegar umsækjandi lagði fyrst fram umsókn sína um alþjóðlega vernd í aðildarríki. Þá bendir orðalag 14. gr. reglugerðarinnar eindregið til þess að ákvæðið eigi við í málum þar sem kvöð um vegabréfsáritun hefur verið felld niður áður en einstaklingurinn leggur fram umsókn sína um alþjóðlega vernd. Ljóst er af framangreindu að þegar kærandi lagði fyrst fram umsókn sína um alþjóðlega vernd var enn gerð krafa um vegabréfsáritun ríkisborgara frá […]. Þá samþykktu yfirvöld í Hollandi beiðni um endurviðtöku á kæranda þann 20. apríl sl., á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Með tilliti til þessa telur kærunefnd að ákvæði 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar eigi ekki við í máli kæranda. Kærunefnd telur því skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi hefur nú greint frá því að hann sé […]. Hann hafi meiðst árið 2002, en um hafi verið að ræða […]. Hann hafi farið í aðgerð í […] vegna meiðslanna og alla tíð síðan hafi meiðslin hrjáð hann mjög mikið. Hann hafi verið mikið hjá læknum vegna þessa og þurfi á verkjalyfjum að halda. Það er mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að veikindi kæranda séu það alvarleg að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Hollandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: The Netherlands (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017),
  • Amnesty International Report 2016/17 - Netherlands (Amnesty International, 22. febrúar 2017),
  • Freedom in the World 2016 - Netherlands (Freedom House, 18. ágúst 2016),
  • World Report 2017 - European Union (Human Rights Watch, 12. janúar 2017),
  • 2016 Country Reports on Human Rights Practices - Netherlands (U.S. Department of State, 3. mars 2017,
  • Vefsíða hollenska öryggis- og dómsmálaráðuneytisins, https://www.government.nl/topics/asylum-policy (sótt 15. júní 2017).

Holland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi má ráða að umsækjendur sem eru með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar eigi að hafa aðgang að búsetuúrræði og mataraðstoð. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd jafnframt að hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd bjóðist gjaldfrjáls lögfræðiaðstoð. Þá séu einnig frjáls félagasamtök staðsett í flestum móttökumiðstöðvum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sjái m.a. um lagalega aðstoð varðandi umsóknarferlið. Slík aðstoð sé bæði einstaklingsbundin sem og almenn. Við meðferð kærumála sé umsækjendum um alþjóðlega vernd einnig úthlutuð lögfræðiaðstoð þeim að kostnaðarlausu.

Yfirvöld í Hollandi hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um móttökuskilyrði í Hollandi býðst þeim umsækjendum um alþjóðlega vernd sem sendir eru til landsins á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd þegar við komu til landsins. Þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Hollands eigi, líkt og aðrir umsækjendur, rétt á lögfræðiaðstoð án endurgjalds og þeir eigi jafnframt rétt á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla. Ekki séu heimildir fyrir því að einstaklingar sem endursendir séu til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hafi átt í erfiðleikum með að fá umsóknir sínar um alþjóðlega vernd teknar til skoðunar þar í landi.

Gögn kveða á um að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hjá hollensku útlendingastofnuninni geti kært niðurstöðuna til svæðisdómstóls. Þeim dómi sé unnt að áfrýja til ríkisráðs í Hollandi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd endanlega synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eigi hann jafnframt möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (e. subsequent application) um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geti borið mál sitt undir svæðisdómstól sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Kærandi er ríkisborgari […], en ríkið er á lista hollenskra stjórnvalda yfir örugg upprunaríka (e. safe country of origin). Samkvæmt framangreindum gögnum sæta mál umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eru ríkisborgarar öruggra upprunaríkja almennt ákveðinni flýtimeðferð í Hollandi. Í hverju tilviki fyrir sig eigi þó að fara fram mat á því hvort að ríkið sé í reynd öruggt ríki fyrir hvern og einn umsækjanda. Umsækjandi eigi rétt á að koma í viðtal til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og útskýra stöðu sína og grundvallist matið síðan á framburði umsækjanda, auk þess sem farið sé yfir hvort ríkið fylgi í framkvæmd skyldum sínum samkvæmt viðeigandi mannréttindasáttmálum. Sé niðurstaðan sú að umsækjanda sé synjað um alþjóðlega vernd eigi hann að yfirgefa landið þegar í stað. Hann hafi þó tækifæri til þess að kæra ákvörðunina til dómstóla, og þá sé hægt að leggja fram beiðni til dómstóla um að fá að dvelja í ríkinu á meðan beðið er eftir niðurstöðu dómstóls í kærumálinu. Umsækjendum í þessari stöðu sé, eins og öðrum umsækjendum, tryggð lögfræðiaðstoð.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Hollandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, þ. á m. veikinda hans, er það jafnframt mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. maí 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 23. febrúar 2017.

Kærunefnd gerir alvarlega athugasemd við að í rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar er í tvígang vísað til ákvæða eldri laga um útlendinga nr. 96/2002, sem féllu úr gildi um síðustu áramót. Að þessu leyti er rökstuðningur ákvörðunarinnar ekki í samræmi við 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að mati nefndarinnar er þessi formannmarki þó ekki þess eðlis að fella beri ákvörðunina úr gildi.

Í máli þessu hafa hollensk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Hollands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                              Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum