Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 171/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 171/2018

Fimmtudaginn 9. ágúst 2018

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 7. maí 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2018, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 24. október 2017. Í janúar 2018 var kærandi boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar og tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða. Kærandi mætti ekki á námskeiðið og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 18. janúar 2018, var óskað eftir skriflegri afstöðu hans vegna þessa. Í bréfinu vakti stofnunin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, án gildra ástæðna, þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Skýringar bárust frá kæranda með tölvupósti 1. febrúar 2018. Með ákvörðun, dags. 19. febrúar 2018, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá þeim degi á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 7. maí 2018. Með bréfi, dags. 9. maí 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 18. maí 2018. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. maí 2018, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi með vísan til þeirra upplýsinga sem liggi fyrir um ástæður þess að hann hafi ekki mætt á námskeiðið. Kærandi telur að ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 eigi ekki við þar sem hann hafi ekki fengið boð á námskeiðið. Þegar kærandi hafi skráð sig á vef Vinnumálastofnunar hafi hann leiðrétt eldra símanúmer og netfang en þær upplýsingar ekki farið í gegn. Það hafi ekki verið hans vilji að vera fjarverandi eða þiggja ekki setu á boðað námskeið.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til þess að samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess tryggða til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Í ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í þeim skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki komi fram að viðkomandi hafi verið upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til og það sé gert með tölvupósti, sms sendingum eða tilkynningum á „Mínum síðum“. Umsækjandi sé því upplýstur um að honum sé skylt að láta vita af öllum breytingum, svo sem breyttu heimilisfangi, símanúmeri og netfangi. Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi ítrekað verið boðaður á námskeið á vegum stofnunarinnar. Í samskiptasögu kæranda megi sjá að hann hafi verið boðaður á námskeiðið „Stuðningur í starfsleit“ með tölvupósti og sms skilaboðum, alls sex sinnum í byrjun janúar 2018. Auk þess hafi ráðgjafi Vinnumálastofnunar reynt að hafa samband við kæranda. Þá hafi boðun á námskeiðið einnig verið aðgengileg á „Mínum síðum“. Í boðuninni hafi verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða.

Með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sem og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum umsækjenda telji stofnunin það á ábyrgð atvinnuleitanda að allar upplýsingar um símanúmer og netföng séu réttar svo að unnt sé að hafa samband við viðkomandi. Þegar atvinnuleitendur sæki um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni skrái þeir sjálfir niður upplýsingar um símanúmer og netföng sín en kærandi hafi óskað eftir rafrænum samskiptum við stofnunina. Að mati Vinnumálastofnunar geti kærandi ekki borið fyrir sig að hafa ekki vitað af ítrekuðum boðunum á námskeið, enda hafi stofnunin nýtt þær samskiptaleiðir sem kærandi hafði óskað eftir og látið stofnuninni í té. Kærandi hafi ekki borið fram neinar haldbærar skýringar á því af hverju allar þrjár samskiptaleiðir sem nýttar hafi verið til að boða hann á námskeið hafi verið virtar að vettugi. Engar vísbendingar séu um að kærandi hafi reynt að breyta upplýsingum eða uppfæra þær fyrr en eftir að hann hafi orðið var við ákvörðun stofnunarinnar. Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram séu ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Þá hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laganna með fjarveru sinni og því skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim, sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009 um breytingu á lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Óumdeilt er að kærandi mætti ekki á námskeiðið „Stuðningur í starfsleit“ hjá Vinnumálastofnun sem stóð frá 8. janúar til 16. janúar 2018. Kærandi hefur borið því við að hafa ekki fengið boð á námskeiðið og vísað til þess að rangt netfang og símanúmer hafi verið skráð hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðaður á námskeiðið með smáskilaboðum í farsíma og tölvupósti alls sex sinnum í byrjun janúar 2018. Þá liggur fyrir að boðunin var einnig send í gegnum vefgátt Vinnumálastofnunar. Kærandi óskaði eftir rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hann sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta og bar því að fylgjast með vefgátt stofnunarinnar. Í ljósi þess bar kæranda einnig að sjá til þess að Vinnumálastofnun hefði réttar upplýsingar um símanúmer og netfang hans þannig að unnt væri að koma skilaboðum til hans um ný skilaboð í vefgáttinni. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi verið boðaður á námskeiðið með fullnægjandi hætti.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um. Að því virtu er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2018, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum