Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Gert verður átak í netvæðingu náms og aðgengi að stafrænu háskólanámi á Íslandi, sem eykur aðgengi að menntun óháð búsetu og aðstæðum. 

Ráðuneyti

Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Kafli

Menntamál

Framvinda

Haustið 2022 var heildarfjöldi námskeiða í íslenskum háskólum 2.610 og af þeim fjölda var hægt að taka 640 námskeið í fjarnámi. Háskólinn Akureyri (HA) og Háskólinn á Bifröst (HB) eru þeir skólar þar sem hlutfall násmkeiða sem taka má í fjarnámi er hæst þ.e. við HB er hlutfallið 100% og við HA 78%. Þessir tveir skólar eru því langöflugastir er kemur að námsframboði í fjarnámi hér á landi. Nú eru í gangi viðræður þessara beggja skóla um mögulega sameiningu og mun, ef af verður, verða til enn öflugri starfseining sem hefur meiri burði til enn frekari þróunar á sviði fjarnámslausna. Báðir þessir skólar eru í sterku samstarfi við þekkingarsetur vítt um land um þjónustu þeirra við bæði háskólana og nemendur þeirra. Uppbygging ljósleiðarsambands um allt land er langt komin sem er mikilvæg forsenda stafræns háskólanáms hér á landi (sjá lið 105). Hagnýting upplýsingatækni er mikilvæg forsenda menntunar óháð búsetu og gefur tækifæri til sveiganlegs náms t.a.m. með vinnu. 

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum