Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Unnið verður markvisst að því að fjölga sveigjanlegum störfum og hlutastörfum í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Menntunartækifæri verða tryggð fyrir fatlað fólk.

Ráðuneyti

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kafli

Örorka

Framvinda

Samhæfingarnefnd félags- og vinnumarkaðsráðherra um velferð og virkni á vinnumarkaði skilaði félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrstu tillögum í janúar 2023 er snúa að leiðum til að fjölga sveigjanlegum störfum og hlutastörfum. Samhæfingarnefndin er enn að störfum. Félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði starfshóp um aukin náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk í desember 2022. Starfshópurinn mun skila skýrslu til ráðherra í mars 2024. Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks (tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024-2027) var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember 2023 og lögð fram á Alþingi í janúar 2024 en þar eru meðal annars  aðgerðir er  varða náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk. 

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum