Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Áfram verður aukið við móttöku kvótaflóttafólks með áherslu á einstaklinga og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Samræmd móttaka flóttafólks í samstarfi ríkis og sveitarfélaga óháð því á hvaða forsendum fólk kemur til landsins verður áfram styrkt. 

Ráðuneyti

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kafli

Málefni útlendinga

Framvinda

Frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012 (mótttaka einstaklinga með vernd, innflytjendaráð) var samþykkt á Alþingi í júní 2022. Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur skrifað undir samning um samræmda móttöku flóttafólks við fjórtán sveitarfélög. Stýrihópur um stefnu í málefnum innflytjenda hefur tekið til starfa og unnið er að frumvarpi í tengslum við inngildingu og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd sem stefnt er að leggja fram á Alþingi haustið 2024.

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum