Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Sérstök áhersla verður lögð á að rýna stöðu kynjanna í skólakerfinu og koma til móts við ólíkar þarfir þeirra.

Ráðuneyti

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kafli

Menntamál

Framvinda

Áfram er unnið að undirbúningi sérstakra aðgerða um fjölbreytileika í skólastarfi og virkni samhliða undirbúningi nýrra heildarlaga um skólaþjónustu og stutt við kynheilbrigði og ofbeldisforvarnir í skólum, þar á meðal með stuðningi við gerð viðbragðsáætlana í kynferðisbrotamálum.  Rafræn námskeið Barna- og fjölskyldustofu um kynferðisofbeldi og kynferðislega hegðun barna og unglinga fyrir alla sem starfa með börnum eru nú öllum aðgengileg  https://www.bofs.is/stodflokkar/fraedslutorg/  Ráðuneytið styrkti verkefni sem er ætlað að stuðla að öruggu skólaumhverfi fyrir hinsegin nemendur á landsbyggðinni.  EKKÓ (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi) leiðarvísir fyrir nemendur, starfsfólk og stjórnendur framhaldsskóla verður gefinn út fljótlega. Fræðslumyndband um EKKÓ mál fyrir framhaldsskólanemendur er langt komið og fer í notkun innan framhaldsskóla fljótlega.  Haldinn var fræðslufundur um mikilvægi kynjafræðikennslu fyrir alla skólameistara framhaldsskóla. Þá er búið að gefa út nýtt námsefni um kynþroskaárin sem ætlað er börnum og ungmennum með auknar stuðningsþarfir sem þurfa aðlagað námsefni. 

Staða verkefnis

Komið vel á veg

Viðvarandi verkefni
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum