Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Tryggja þarf jafnræði í þjónustu við fatlað fólk, m.a. með samráði ríkis og sveitarfélaga um endurmat á kostnaði við málaflokk fatlaðra og með því að festi í sessi framtíðarfyrirkomulag NPA-þjónustu.

Ráðuneyti

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kafli

Örorka

Framvinda

Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks (tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024-2027) var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember 2023 og lögð fram á Alþingi í janúar 2024. Starfshópur forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, innviðaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga  um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk skilaði áfangaskýrslu I í janúar 2024 og mun skila áfangaskýrlu II í júní 2024 og ljúka þar með störfum. Undirritað var samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk í desember 2023 og var það samkomulag byggt á vinnu starfshópsins.  Félags- og vinnumarkaðsráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í desember 2022 sem varð að lögum þar sem meðal annars var lagt til að veitt verði framlag til allt að 145 samninga NPA á árinu 2023 og allt að 172 samninga á árinu 2024. 

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum