Hoppa yfir valmynd

Táknmálsgrein

Velferðarráðuneytið fer með yfirstjórn almannatrygginga. Ráðuneytið annast stefnumótun í málaflokknum og hefur eftirlit með framkvæmd laga um almannatryggingar, laga um félagslega aðstoð, laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna og laga um greiðslur til lifandi líffæragjafa.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd laga um lífeyristryggingar, félagslega aðstoð, greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna og framkvæmd laga um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

Sjúkratryggingar Íslands annast framkvæmd laga um sjúkratryggingar og slysatryggingar.

Úrskurðarnefnd almannatrygginga fjallar um ágreining sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta eða greiðslna.

Í stjórnarskránni segir að öllum, sem þess þurfi, skuli tryggður í lögum réttur til aðstoðar, vegna meðal annars örorku og elli. Ákveðnu kerfi hefur verið komið á hér á landi til að tryggja öllum íbúum landsins rétt til aðstoðar í þessum tilvikum.

Almannatryggingakerfið er skyldubundið og lögbundið og á við alla sem búsettir eru á Íslandi, óháð ríkisborgararétti. Lífeyrisréttindi ávinnast við búsetu og veitir 40 ára búseta fullan rétt. Ekki er gerð krafa um atvinnuþátttöku og ekki er krafist sérstakrar skráningar, umsóknar eða greiðslu iðgjalds til að ávinna sér réttindi. Kostnaðurinn greiðist úr ríkissjóði.

Fjárhæð lífeyris almannatrygginga er föst fjárhæð, óháð fyrri tekjum lífeyrisþega, sem ákveðin er með lögum og endurskoðuð árlega eða breytt með reglugerð sem velferðarráðherra setur. Lífeyrisgreiðslur hvers lífeyrisþega lækka eftir ákveðnum reglum hafi viðkomandi einnig aðrar tekjur. Mánaðarleg lífeyrisgreiðsla getur því verið mismunandi. Til viðbótar lífeyri almannatrygginga er heimilt samkvæmt lögum um félagslega aðstoð að greiða lífeyrisþegum uppbætur vegna sérstakra aðstæðna eða kostnaðar.

Öllum einstaklingum á vinnumarkaði hér á landi er skylt að greiða iðgjald til lífeyrissjóðs. Lífeyrissjóðakerfið er fjármagnað með iðgjöldum sjóðfélaga og vinnuveitenda og greiða lífeyrissjóðirnir sjóðfélögum m.a. elli- og örorkulífeyri. Réttur sjóðfélaga fer eftir tímalengd aðildar og inngreiddum iðgjöldum.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum