Hoppa yfir valmynd
22. mars 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Beint streymi frá norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál fimmtudaginn 23. mars

Norrænt samstarf - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Heilbrigðisráðherrar Norðurlandaþjóðanna ræða um áskoranir á sviði geðheilbrigðismála og leiðir til að takast á við þær á árangursríkan hátt á norrænni ráðstefnu um geðheilbrigðismál í Hörpu, fimmtudaginn 23. mars. Þar koma einnig fram þekktir fyrirlesarar, íslenskir og erlendir og taka þátt í vinnu- og málstofum um áskoranir, strauma og stefnur sem snúa að geðheilbrigði og geðheilbrigðisþjónustu. Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi (sjá hér að neðan) sem hefst kl. 8.30.

Ráðstefnan er haldin í tilefni af formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Þema hennar er Collaboration and Co-Production sem endurspeglar áherslu á hvernig unnt sé að nálgast þetta mikilvæga heilbrigðismál á árangursríkan máta með virkri samvinnu. Sambærilegar ráðstefnur eru haldnar annað hvert ár og er óhætt að segja að þær séu flaggskip norræns samstarfs í geðheilbrigðismálum. Ráðstefnan og efni hennar hefur ekki einungis vakið áhuga og athygli meðal Norðurlandaþjóðanna því þátttakendur sem hafa skráð sig koma víða að frá fjölmörgum löndum. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum