Hoppa yfir valmynd
15. desember 2022 Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Brúum bilið: Verkefni til að auka þátttöku og virkni fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra - mynd

Þrír ráðherrar undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“ en það miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst fatlaðra barna og ungmenna. Alls verður 60 milljónum króna veitt til verkefnisins sem er til þriggja ára. Yfirlýsinguna undirrituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Markmiðið er að öll börn og ungmenni eigi möguleika á að taka þátt í íþróttum í samræmi við óskir þeirra og þarfir. Áhersla er á að fötluðum börnum og ungmennum verði til að mynda gert kleift að stunda íþróttir með ófötluðum börnum kjósi þau svo. Verkefnið er liður í að ná þeim markmiðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem varða þátttöku fatlaðs fólks í íþróttastarfi.

Íþróttasamband fatlaðra er ábyrgðaraðili verkefnisins en það verður unnið í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands. Bakhjarlar verkefnisins verða ofangreind þrjú ráðuneyti, auk ÖBÍ og Þroskahjálpar.

Aðgerðirnar sem ráðist verður í byggja á tillögum sem fram komu á ráðstefnu s.l. vor undir yfirskriftinni „Farsælt samfélag fyrir alla – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi“. Um 200 manns tóku þátt og fjöldi hugmynda varð til. Aðgerðaáætlun var í kjölfarið unnin um fulla þátttöku og virkni fatlaðs fólks á forsendum eigin getu.

Verkefnastjóri mun nú vinna að framgangi aðgerðanna og eiga í samstarfi við sveitarfélög og íþróttafélög um land allt, auk fulltrúa félagsþjónustu, skóla, íþróttahéraða ÍSÍ og UMFÍ og fjölda annarra sem tengjast verkefninu. Einnig verða veittir styrkir og aðstoð við þróun sprotaverkefna í íþróttastarfi sem hafa þann tilgang að efla nýsköpun og styrkja við góðar fyrirmyndir þannig að markmið verkefnisins nái fram að ganga.

 

  • Brúum bilið: Verkefni til að auka þátttöku og virkni fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi - mynd úr myndasafni númer 1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum