Hoppa yfir valmynd
16. apríl 1996 Matvælaráðuneytið

Ársfundur Evrópubankans 1996

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Nr. 10/1996




Ársfundur Evrópubankans ("European Bank for Reconstruction and Development") var haldinn í Sófíu í Búlgaríu 15.-16. apríl 1996. Fundinn sátu af Íslands hálfu Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Halldór J. Kristjánsson, skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og Gunnar Viðar, starfsmaður á stjórnarskrifstofu Svíþjóðar, Íslands og Eistlands í bankanum.

Síðastliðið ár var annað heila starfsár bankans undir stjórn frakkans Jacques de Larosiere sem tók við sem aðalbankastjóri sumarið 1993. Undir forystu de Larosiere hefur starf bankans orðið markvissara en áður. Aukin áhersla er lögð á að bankinn fjármagni verkefni í öllum ríkjum Mið- og Austur-Evrópu, að hann sinni í auknum mæli smáum og meðalstórum fyrirtækjum, að hann leggi fram hlutafé og starfi í auknum mæli í gegnum staðarbanka í hverju aðildarríki.

Á árinu var hlutur bankans í fjármögnun hinna ýmsu verkefna 2,0 milljarðar ECU (jafnvirði um 170 milljarða króna). Til samanburðar var hlutur bankans í fjármögnun verkefna fyrstu fjögur starfsárin (1991-1994) samtals 4,4 milljarðar ECU (jafnvirði um 370 milljarða króna). Alls tók bankinn þátt í 165 verkefnum á árinu 1995 samanborið við 200 fyrstu fjögur starfsárin til samans. Þá skilaði bankinn hagnaði í annað skipti á árinu 1995.

Á ársfundinum kom fram mikil ánægja með starfsemi Evrópubankans og þá miklu breytingu sem orðið hefur frá því að de Larosiere tók við. Voru ræðumenn almennt sammála um að starf bankans væri mun markvissara en áður og að sérstaða hans meðal alþjóðlegra fjármálastofnana kæmi æ betur fram. Sérstaða Evrópubankans felst einkum í því að geta fjármagnað bæði verkefni á vegum opinberra aðila og einkaaðila, ýmist með lánum eða hlutafé.

Í ræðu sinni á ársfundinum lagði Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem situr í bankaráði Evrópubankans fyrir Ísland, áherslu á mikilvægi þess að sinna smáum og meðalstórum fyrirtækjum, á hlutafjárframlög og mikilvægi þess fyrir bankann að nota staðarbanka til að miðla fjármagni. Þetta hefur verið afstaða Íslands frá stofnun bankans og það er ánægjulegt að stefna bankans endurspeglar nú þessi sjónarmið. Finnur lagði áherslu á staðbundna hlutafjársjóði sem bankinn hefur ásamt öðrum sett á laggirnar. Þá lagði hann til að bankinn kannaði möguleika á því að leiða saman smá og meðalstór fyrirtæki á Vesturlöndum og í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Reynslan hefur sýnt að fyrirtæki á Íslandi og smá og meðalstór fyrirtæki á öðrum Vesturlöndum, sem áhuga hafa á verkefnum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu, eiga erfitt um vik að nálgast bankann og vekja áhuga hans á verkefnum. Lagði ráðherra áherslu á samstarfsverkefni smærri fyrirtækja með sértækum aðgerðum til að koma slíkum verkefnum á.

Í tengslum við ársfundinn átti íslenska sendinefndin fundi með sendinefndum Eystrasaltsríkjanna og nokkurra annarra ríkja í Austur Evrópu til að ræða þátttöku íslenskra fyrirtækja í samstarfsverkefnum.

Af Íslands hálfu var sérþekking íslenskra fyrirtækja á eftirgreindum sérsviðum kynnt fyrir viðkomandi ráðherrum:

  • Sérhæfð þekking á nýtingu jarðhita, rekstri hitaveitna, orkusparnaði og rekstri raforkuvirkjana og dreifiveitna.
  • Sérhæfð þekking á sviði matvælaframleiðslu, fiskveiða og fiskvinnslu.
  • Sérhæfð þekking í hugbúnaðarþjónustu og framleiðslu.



Rætt var um að skipulagðar yrðu heimsóknir íslenskra fyrirtækja til ríkjanna þar sem samstarfsverkefni yrðu kynnt.

Reykjavík, 16. apríl 1996.

Nánari upplýsingar veitir Halldór J. Kristjánsson í síma 560 9070.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum