Hoppa yfir valmynd
27. september 1999 Matvælaráðuneytið

Sjávarútvegs- og samgönguráðherra heimsækja Snæfellsnes. 27.09.99

Fréttatilkynning


Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra eru í dag mánudag á ferð um Snæfellsnes. Ferðin er sú fjórða í röð heimsókna sjávarútvegsráðherra um landið í sumar og haust. Áður hefur hann heimsótt Norðurland, Vestfirði og Austurland. Ráðherrarnir munu m.a. fara í útgerðarfyrirtæki á Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Rifi og Hellissandi. Heimsókninni líkur svo um kvöldið með almennum stjórnmálafundi sjávarútvegsráðherra og samgönguráðherra sem haldinn verður í Ólafsvík.
Sjávarútvegsráðuneytið
27. september 1999



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum