Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2000 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Óskað eftir upplýsingum um íþróttakennslu í grunnskólum skólaárið 1999/2000

Til skólaskrifstofa

1. febrúar 2000


Menntamálaráðuneyti óskar hér með eftir upplýsingum um íþróttakennslu í grunnskólum skólaárið 1999/2000, sbr. reglugerð nr. 384/1996 um upplýsingaskyldu sveitarfélaga um skólahald.

Meðfylgjandi er spurningalisti sem skólaskrifstofur eru beðnar um að koma til allra grunnskóla á þeirra vegum. Spurningalistann má einnig finna á heimasíðu menntamálaráðuneytis .

Athygli er vakin á því að skilafrestur spurningalista til menntamálaráðuneytis er 25. febrúar 2000.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum