Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2000 Matvælaráðuneytið

Árni M. Mathiesen heimsækir sjávarútvegsfyrirtæki á Reykjanesi. 15.02.00

Fréttatilkynning


Sjávarútvegsráðherra heimsækir sjávarútvegsfyrirtæki á Reykjanesi miðvikudag og fimmtudag í þessari viku. Heimsóknin en liður í röð heimsókna ráðherrans í kjördæmi landsins í sumar og vetur. Árni mun einnig eiga fundi með fulltrúum stéttarfélaga.

Á morgun mun ráðherra heimsækja útgerðarfyrirtæki í Grindavík og Sandgerði en auk þess mun hann eiga fund með Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur. Á fimmtudaginn verða síðan fyrirtæki í Vogunum, Reykjanesbæ og Garðinum heimsótt en þann sama dag mun ráðherrann eiga fund með Útvegsmannafélagi Suðurnesja.

Sjávarútvegsráðuneytið
15. febrúar 2000

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum