Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2000 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 1999 - mars 1999

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla


Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 1999

    Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í íslensku og stærðfræði verði lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk, haustið 1999, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

    Prófdagar verða sem hér segir:

    Stærðfræði í 4. og 7. bekk mánudagur 18. október 1999
    Íslenska í 4. og 7. bekk þriðjudagur 19. október 1999

    Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd og uppbyggingu prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.

    (Mars 1999)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum