Hoppa yfir valmynd
22. mars 2000 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd lokapróf í fjórum námsgreinum í 10. bekk

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla,
skólaskrifstofa og annarra hagsmunaðila



    Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd lokapróf verði lögð fyrir í fjórum námsgreinum í 10. bekk vorið 2001, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla. Athygli er vakin á því að vorið 2001 verða samræmd lokapróf valfrjáls í fyrsta skipti fyrir nemendur og haustið 2001 taka ný inntökuskilyrði í framhaldsskóla gildi, sbr. reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla nr. 98/2000.

    Athygli er vakin á því að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra prófa í grunnskólum er í endurskoðun með hliðsjón af ákvæði um valfrelsi nemenda til próftöku og verður reglugerðin send skólum og öðrum er hún varðar um leið og hún kemur út.

    Prófdagar og prófgreinar í 10. bekk grunnskóla vorið 2001 verða sem hér segir:
    Íslenska20. aprílkl. 9.00-12.00
    Enska23. apríl kl. 9.00-12.00
    Danska24. apríl kl. 9.00-12.00
    Stærðfræði25. aprílkl. 9.00-12.00


    Ákvörðun um prófdaga samræmdra prófa er tekin í samráði við Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála sem sér um framkvæmd þeirra. Stofnunin sendir síðar nánari leiðbeiningar um framkvæmd prófanna, s.s. skráningu nemenda til prófs.

    (mars 2000)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum