Hoppa yfir valmynd
22. mars 2000 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd próf í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk

    Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla



    Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í íslensku og stærðfræði verði lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk, haustið 2000, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

    Prófdagar verða sem hér segir:

    Íslenska í 4. og 7. bekk19. október 2000 kl. 9.00-12.00
    Stærðfræði í 4. og 7. bekk 20. október 2000kl. 9.00-12.00


    Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.

    (mars 2000)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum