Hoppa yfir valmynd
8. júní 2001 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum innanlands nr. 2/2001

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1.

Gisting og fæði í einn sólarhring

kr.

12.400

2.

Gisting í einn sólarhring

"

7.400

3.

Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag

"

5.000

4.

Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag

"

2.500

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2001. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 9/2000 dags. 24. nóvember 2000.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins.


Reykjavík, 7. júní 2001

Ferðakostnaðarnefnd


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum