Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2001 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fyrirkomulag mats á áhrifum laga og annarra stjórnvaldsákvarðana á fjárhag sveitarfélaga

Skýrsla starfshóps um kostnaðarmat
Skýrsla starfshóps um kostnaðarmat

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út skýrslu starfshóps um fyrirkomulag mats á áhrifum laga og annarra stjórnvaldsákvarðana á fjárhag sveitarfélaga. Í skýrslunni eru tillögur starfshópsins um fyrirkomulag slíks mats ásamt ítarlegri greinargerð með viðaukum.

Starfshópurinn var skipaður af félagsmálaráðherra þann 3. janúar 2001 í kjölfar niðurstöðu tekjustofnanefndar en í skýrslu hennar, sem kom út í október árið 2000, var bent á mikilvægi þess að mat af þessum toga færi fram.

Eftirtaldir aðilar skipuðu starfshópinn:
· Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri, Sambandi ísl. sveitarfélaga
· Leifur Eysteinsson, viðskiptafræðingur, fjármálaráðuneyti
· Garðar Jónsson, viðskiptafræðingur, félagsmálaráðuneyti sem jafnframt var skipaður formaður starfshópsins.

Skýrslu starfshópsins er hægt að nálgast hér:

SkýrslaSkýrsla starfshóps um kostnaðarmat





Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum