Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2002 Matvælaráðuneytið

Nr. 02/2002 - Blaðamannafundur vegna álits nefndar um ferðaþjónustu bænda.

Fréttatilkynning nr. 02/2002

Blaðamannafundur


Nefnd sem landbúnaðarráðherra skipaði og hafði það hlutverk að kanna hvernig megi renna styrkari stoðum undir ferðaþjónustu bænda og efla tengsl hennar við samtök og stofnanir landbúnaðarins hefur skilað áliti og tillögum.
Landbúnaðarráðherra boðar hér með til blaðamannafundar þar sem álit nefndarinnar verður kynnt og rætt. Auk landbúnaðarráðherra og nefndarmanna munu forsvarsmenn ferðaþjónustubænda, Bændasamtaka Íslands og Hólaskóla mæta á fundinn.


Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 6 í sal 2, mánudaginn 4. febrúar og hefst kl. 12:00.


Í landbúnaðarráðuneytinu,
1. febrúar 2002



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum