Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2002 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ráðstefna um EES-samninginn og íslensk sveitarfélög

Þann 8. febrúar næstkomandi munu Samband íslenskra sveitarfélaga og utanríkisráðuneytið standa fyrir ráðstefnu um áhrif EES-samningsins á íslensk sveitarfélög. Ráðstefnan er öllum opin en markmið hennar er fyrst og fremst að veita sveitarstjórnarmönnum og öðrum stjórnendum sveitarfélaga yfirsýn yfir áhrif ESB og EES-samningsins á íslensk sveitarfélög. Framsögumenn verða innlendir og erlendir.

Ráðstefnan verður haldin í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, Hamraborg 6 og mun standa frá u.þ.b. kl. 13:00-17:30. Ráðstefnustjóri verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. 

Ráðstefnugjald er 3.500 krónur.  Veitingar eru innifaldar í þátttökugjaldi.  Þátttaka óskast tilkynnt skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga eigi síðar en 5. febrúar næstkomandi, í síma 515 4900, á myndsendi númer 515 4903 eða á tölvupóstfangið [email protected].

Nánari upplýsingar: www.samband.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum