Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2002 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd próf í íslensku og stærðfræði haustið 2002.

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla

Samræmd próf í íslensku og stærðfræði haustið 2002

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í íslensku og stærðfræði verði lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2002, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar verða sem hér segir:
Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 10. október 2002kl. 9.00-12.00
Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 11. október 2002kl. 9.00-12.00


Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.


(Febrúar 2002)


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum