Hoppa yfir valmynd
8. mars 2002 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd lokapróf í sex námsgreinum í 10. bekk

Til skólastjóra grunnskóla og
skólanefnda

Samræmd lokapróf í sex námsgreinum í 10. bekk
    Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd lokapróf verði lögð fyrir í sex námsgreinum í 10. bekk vorið 2003, sbr. reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í 10. bekk í grunnskólum nr. 414/2000 og aðalnámskrá grunnskóla frá 1999. Námsgreinar sem prófað verður úr eru: íslenska, danska, enska, náttúrufræði, samfélagsgreinar og stærðfræði. Vakin er athygli á því að vorið 2003 verður í fyrsta skipti prófað í samfélagsgreinum.

    Að gefnu tilefni skal tekið fram að samræmd lokapróf eru valfrjáls fyrir nemendur, sbr. 1. og 2. gr. reglugerðar nr. 414/2000. Nemendur hafa val um hvaða samræmd próf þeir velja að þreyta en vakin er athygli á því að samfélagsgreinar og náttúrufræði eru skyldunámsgreinar í grunnskóla og nemendur geta ekki valið sig frá námi í þessum greinum.

    Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla vorið 2003 verða sem hér segir:

    Íslenska föstudagur 2. maíkl. 9.00-12.00
    Stærðfræði mánudagur 5. maí kl. 9.00-12.00
    Enskaþriðjudagur 6. maíkl. 9.00-12.00
    Samfélagsgreinarfimmtudagur 8. maí Kl. 9.00-12.00
    Danskaföstudagur 9. maí kl. 9.00-12.00
    Náttúrufræðimánudagur 12. maí kl. 9.00-12.00


    Ákvörðun um prófdaga samræmdra prófa í 10. bekk vorið 2003 er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir síðar nánari leiðbeiningar um framkvæmd prófanna.
      (Mars 2002)

      Hafa samband

      Ábending / fyrirspurn
      Ruslvörn
      Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum