Hoppa yfir valmynd
26. mars 2002 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar 2002

Á grundvelli 1. mgr. 1. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram 25. maí 2002.

Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 4. maí 2002. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 2. apríl 2002.

Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 1. gr. framangreindra laga.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum