Innritun nýnema í framhaldsskóla fer fram mánudaginn 10. og þriðjudaginn 11. júní.
Til stjórnenda framhaldsskóla og grunnskóla sem starfrækja 10. bekk.
Innritun nýnema í framhaldsskóla fer fram mánudaginn 10. og þriðjudaginn 11. júní
Ráðuneytið vill vekja athygli á að vegna breytts starfstíma grunnskóla mun innritun nýnema í framhaldsskóla fara fram nokkru síðar en verið hefur. Flestum grunnskólum landsins mun verða slitið föstudaginn 7. júní eða mánudaginn 10. júní. Allir nemendur sem útskrifast úr grunnskóla í ár ættu því að hafa fengið lokaeinkunnir sínar í hendur eigi síðar en 10. júní.
Ráðuneytið hefur því ákveðið að innritun nýnema í framhaldsskóla fari fram mánudaginn 10. og þriðjudaginn 11. júní.
Þetta tilkynnist hér með.
(Mars 2002)