Hoppa yfir valmynd
10. september 2002 Innviðaráðuneytið

FITUR Samstarfssamningur á milli Íslands og Færeyja á sviði ferðamála 2003-2005

FITUR Samstarfssamningur á milli Íslands og Færeyja á sviði ferðamála 2003-2005 undirritaður.

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra og Bjarni Djurholm, atvinnumálaráðherra Færeyja undirrita í dag samsstarfssamning um ferðamál á milli landanna en ráðherrarnir fara með þann málaflokk, hvor í sínu landi.

Samningurinn tekur gildi 1. janúar 2003 og gildir í þrjú ár. Löndin leggja fram jafnháa upphæð til samstarfsins eða tíu milljónir íslenskra króna á ári. Hvort land tilnefnir þrjá fulltrúa í stjórn FITUR.

Megintilgangur FITUR-samstarfsins er að auka ferðalög og önnur samskipti á milli Íslands og Færeyja. Í því skyni styrkir FITUR árlega fjölmarga íslenska og færeyska hópa og einstaklinga, auk fyrirtækja, sem hafa skýr markmið með ferðalögum sínum og í anda samstarfsins. FITUR hefur einnig komið á samstarfi á milli skóla í löndunum tveimur.

Í FITUR-samningnum er lögð áhersla á að auka enn frekar samstarf íslenskra og færeyskra flugfélaga til þess að bæta megi samgöngur á milli landanna, en öruggar og tíðar ferðir á sanngjörnu verði eru undirstaða þess að samskiptin verði tryggð.

Í samningnum er lögð áhersla á að íbúar landanna beggja ferðist meira innbyrðis og er fjallað sérstaklega um samskipti í atvinnu- og menningarmálum, vinabæjartengsl og íþrótta- og námsferðir enda sé um að ræða samskipti sem líkleg eru til að mynda tengsl og auka skilning á milli þjóðanna.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum