Hoppa yfir valmynd
2. september 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

EuroNews on Special Needs Education (2.09.2003)


Til grunnskóla, framhaldsskóla, skólaskrifstofa og ýmissa annarra aðila

Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), Euronews nr. 10, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni. Einnig fylgir nýr kynningarbæklingur um Evrópumiðstöðina.

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu er sjálfstæð stofnun sem menntamálaráðuneyti 22 þátttökulanda standa að, þ.m.t. Íslands. Eitt meginmarkmið með starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar er að stuðla að umbótum í sérkennslu í Evrópu og auka samstarf Evrópulanda á því sviði.

Sérstaklega er vakin athygli á umfjöllun í fréttabréfinu um Nám án aðgreiningar, nýtt átak um nám fyrir alla.

Þess er vænst að ofangreint efni verði kynnt í stofnun yðar eða samtökum.

Einnig er bent á vefsíðu Evrópumiðstöðvarinnar: http://www.european-agency.org

Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla er sérstakur samstarfsaðili Evrópumiðstöðvarinnar fyrir Íslands hönd. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar starfsemina er bent á netfang hennar [email protected]

(September 2003)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum