Hoppa yfir valmynd
12. september 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stjórn listamannalauna - Listamannalaun 2004

Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum til úthlutunar árið 2004, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með áorðnum breytingum.

Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum til úthlutunar árið 2004, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með áorðnum breytingum.

Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda
2. Launasjóði myndlistarmanna
3. Tónskáldasjóði
4. Listasjóði

Umsóknir einstaklinga, ásamt fylgigögnum, skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16:00 mánudaginn 17. nóvember 2003. Umsóknir skulu auðkenndar "Starfslaun listamanna 2004" og tilgreindur sá sjóður sem sótt er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.

Heimilt er að veita starfslaun úr Listasjóði til stuðnings leikhópum, enda verði þeim varið til greiðslu starfslauna til einstakra leikhúslistamanna. Umsóknir leikhópa til Listasjóðs fyrir einstaka leikhúslistamenn, ásamt fylgigögnum, skulu berast Stjórn listamannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn 17. nóvember 2003. Umsóknir skulu auðkenndar "Starfslaun listamanna 2004 - leikhópar". Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.

Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991 með áorðnum breytingum.

Vakin er athygli á að hægt er að ná í umsóknareyðublöð á heimasíðu Stjórnar listamannalauna. Veffangið er: http://www.mmedia.is/listlaun

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 17. nóvember nk.


Stjórn listamannalauna 12. september 2003

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum