Hoppa yfir valmynd
12. september 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til leiklistarstarfsemi

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2004 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2004 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2004 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 17. nóvember nk. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.
Vakin er sérstaklega athygli á að umsóknarfrestur er til 17. nóvember 2003.


Menntamálaráðuneytið, 12. september 2003.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum