Hoppa yfir valmynd
16. september 2003 Matvælaráðuneytið

Breytingar á yfirstjórn RARIK.

Nr. 12/2003







Þann 1. október nk. verða breytingar á yfirstjórn Rafmagnsveitna ríkisins. Þá lætur Kristján Jónsson af störfum að eigin ósk eftir 27 ár í embætti rafmagnsveitustjóra.

Iðnaðarráðherra hefur sett Tryggva Þ. Haraldsson í embætti rafmagnsveitustjóra til áramóta. Tryggvi er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf hjá Rafmagnsveitum ríkisins árið 1980 og hefur gegnt starfi umdæmisstjóra RARIK á Akureyri síðastliðin tíu ár.

Reykjavík, 16. september 2003.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum