Hoppa yfir valmynd
17. október 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi, Hollandi og Noregi

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi, Hollandi og Noregi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa í þessum löndum.

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi, Hollandi og Noregi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa í þessum löndum. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Umsækjendur skulu hafa lokið BA- eða BS-prófi eða öðru sambærilegu prófi. Menntamálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig á eftirgreindum vefsíðum:

Í Finnlandi eru styrkir veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 725 evrum á mánuði. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu CIMO (Centre for International Mobility) http://finland.cimo.fi/studying/

Í Hollandi er um svokallaða Huygens-styrki að ræða og eru þeir veittir til 3 - 10 mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæðin er 702 evrur á mánuði og skulu umsækjendur vera yngri en 35 ára.Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu NUFFIC (Netherlands organization for international cooperation in higher education) http://www.nuffic.nl/huygens/

Í Noregi eru styrkir veittir til 1 - 10 mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæð er 8.000 n.kr. á mánuði og skulu umsækjendur vera yngri en 40 ára. Upplýsingar og eyðublað fást á vefsíðu Rannsóknarráðs Noregs www.rcn.no/english/is/
Umsóknir um ofangreinda styrki, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. desember nk. á sérstökum umsóknareyðublöðum.
Menntamálaráðuneytið, 17. október 2003.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum