Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2003 Matvælaráðuneytið

Ráðning ráðuneytisstjóra í Sjávarútvegsráðuneytinu

Fréttatilkynning


Sjávarútvegsráðherra hefur í dag skipað dr. Vilhjálm Egilsson hagfræðing, ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu frá og með 1. janúar 2004.

Vilhjálmur er fæddur á Sauðárkróki 18. desember 1952. Hann er kvæntur Ragnhildi Pálu Ófeigsdóttur og eiga þau fjögur börn.

Vilhjálmur sat á Alþingi fyrir Norðurlandskjördæmi vestra frá 1991 til 2003. Hann starfar nú hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Sjávarútvegsráðuneytið
14. nóvember 2003

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum