Hoppa yfir valmynd
8. desember 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2004

Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2004.

Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2004. Sjóðurinn er í vörslu menntamálaráðuneytisins og sér þriggja manna stjórn um að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar.

Um framlög úr sjóðnum geta sótt þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskólakennara, t.d. skólaskrifstofur, sveitarfélög, skólar, kennaramenntunarstofnanir, félög og fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að námskeiðum verði að fullu lokið eigi síðar en við lok skólaársins 2004-2005. Verði ekki unnt að ljúka námskeiðum innan þeirra tímamarka fellur styrkveiting niður en hægt er að sækja um að nýju við næstu úthlutun.

Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna að byggt sé á:

að endurmenntunartilboð mæti þörfum grunnskólans

skólastefnu og aðalnámskrá

fagmennsku og gæðum

Við úhlutun árið 2004 leggur menntamálaráðuneytið áherslu á endurmenntunarnámskeið í stærðfræði.

Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem njóta endurmenntunarinnar.

Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers konar endurmenntunartilboð umsækjandi hyggst bjóða fram, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram sundurliðaða kostnaðaráætlun.

Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk verður gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntunarverkefni þar sem fram kemur m.a. lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og hvernig greiðslum verður háttað.

Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 30. janúar 2004, á sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi í menntamálaráðuneytinu og á vef ráðuneytisins.

Upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla, reglur sjóðsins o.fl. er að finna á vef menntamálaráðuneytisins: www. menntamalaraduneyti.is.

Menntamálaráðuneytið, 8. desember 2003



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum