Hoppa yfir valmynd
11. desember 2003 Dómsmálaráðuneytið

Löggildingarpróf fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka

Löggildingarpróf fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka verða haldin 13. - 21. apríl nk. að undangengnu kynningar- og undirbúningsnámskeiði á vegum Þýðingarseturs Háskóla Íslands, Nýja Garði, 101 Reykjavík, sími 525 4192.
Námskeiðið mun hefjast mánudaginn 5. janúar 2004 kl. 13.00 í stofu 301 Nýja Garði og stendur til marsloka. Próftökum er skylt að sækja námskeiðið.

Umsóknir á eyðublöðum sem fást í ráðuneytinu skulu berast til ráðuneytisins í síðasta lagi 31. desember 2003.

Nánari upplýsingar í síma 545 9006.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum