Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

VERKEFNASTYRKIR UNESCO 2004-2005

Í fjárhagsáætlun Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, er fé til verkefnastyrkja sem stofnanir, félög og samtök í aðildarlöndum UNESCO geta sótt um í samræmi við ákvörðun 32. aðalráðstefnu UNESCO.

Í fjárhagsáætlun Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, er fé til verkefnastyrkja (Participation Programme) sem stofnanir, félög og samtök í aðildarlöndum UNESCO geta sótt um í samræmi við ákvörðun 32. aðalráðstefnu UNESCO. Verkefnin þurfa að falla undir viðfangsefni UNESCO á sviði menntamála, menningarmála, vísinda og fjölmiðlunar og njóta þau verkefni forgangs sem tengjast forgangsmálum stofnunarinnar þ.e. málefnum kvenna, æskufólks, Afríku og þeim þróunarlöndum sem verst eru sett.

Nánari upplýsingar um ákvörðun 32. aðalráðstefnu UNESCO um verkefnastyrkina ásamt umsóknareyðublöðum er að finna á heimasíðu UNESCO http://www.unesco.org/general/eng/about/circulars/cl3691.pdf eða hjá íslensku UNESCO-nefndinni, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum skal skilað í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2004.

Reykjavík, 8. janúar 2004
Íslenska UNESCO-nefndin

Menntamálaráðuneytið 9. janúar 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum