Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Áætluð framlög 2004

Áætluð almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla 2004

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt tillögu að áætlun um úthlutun almennra jöfnunarframlaga til sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla á árinu 2004, sbr. 3. gr. rgl. nr. 351/2002.

Áætlað er að heildarfjárhæð almennra jöfnunarframlaga á árinu 2004 nemi rúmum 2.700 m.kr. Niðurstöðu gagnvart einstökum sveitarfélögum er að finna í meðfylgjandi yfirliti.

Skjal fyrir Microsoft ExcelAlmenn jöfnunarframlög 2004

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög 2004

Jafnframt hefur ráðgjafarnefndin samþykkt áætlun um úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga til sveitarfélaga á árinu 2004, sbr. 13. gr. rgl. nr. 113/2003. Samþykkti ráðgjafarnefndin að leggja til að áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga til sveitarfélaga næmi samtals 2.000 m.kr. á árinu 2004.

Framlögin verða greidd mánaðarlega, en 10% er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfé sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var.

Skjal fyrir Microsoft ExcelÁætluð útgjaldajöfnunarframlög 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum