Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stuðningur við lista- og menningarstarfsemi

Stuðningur við lista- og menningarstarfsemi. Árið 2004 verður umsóknarfrestur sem hér segir: 1. febrúar, 1. maí, 1. september og 1. nóvember.
Í fjárlögum 2004 eru, eins og undanfarin ár, fjárveitingarliðirnir: Listir, framlög, ýmis fræðistörf og norræn samvinna. Að því leyti sem skipting liðanna er ekki ákveðin í fjárlögum ráðstafar menntamálaráðuneytið þeim á grundvelli umsókna til ýmissa verkefna á sviði lista og annarrar menningarstarfsemi. Árið 2004 er gert ráð fyrir að ákvörðun um framlög af þessum liðum verði tekin í febrúar, maí, september og nóvember með hliðsjón af umsóknum sem fyrir liggja hverju sinni við upphaf þessara mánaða. Nauðsynlegt kann þó að reynast að víkja frá þessum tímamörkum. Hafi umsækjandi áður hlotið styrk er ný umsókn hans að jafnaði einungis tekin til umfjöllunar hafi hann skilað fullnægjandi greinargerð vegna eldri verkefna.

Eyðublöð fyrir umsóknir um styrk af framangreindum fjárlagaliðum og fyrir greinargerð um ráðstöfun styrkfjár fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4. Einnig er unnt að nálgast eyðublöðin á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is

Árið 2004 verður umsóknarfrestur sem hér segir: 1. febrúar, 1. maí, 1. september og 1. nóvember.


Menntamálaráðuneytið, 16. janúar 2004.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum