Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þróunarsjóður leikskóla 2004

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla fyrir árið 2004.
Umsóknir skulu hafa borist til Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands, rannsokn.khi.is/throunarsjodur fyrir kl.16. þriðjudaginn 27. febrúar 2004.

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla fyrir árið 2004. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi. Um styrk geta sótt leikskólastjórar, leikskólakennarahópar eða einstakir leikskólakennarar. Aðrir geta sótt um styrk með samþykki leikskólastjóra og rekstraraðila. Sækja má um styrk til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru hafin.

Við úthlutun njóta verkefni á neðangreindum sviðum forgangs að öðru jöfnu:

A. Samstarf leikskóla og foreldra
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni er lúta að samstarfi leikskóla og foreldra. Óskað er eftir verkefnum sem miða að því að auka tengsl leikskóla og foreldra til styrkingar uppeldisstarfi leikskóla og ytri umgjörð starfseminnar.

B. Starf með yngri börnum í leikskóla
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni er lúta að starfi með yngri börnum í leikskóla. Óskað er eftir verkefnum sem sérstaklega miða að því að þróa uppeldis-, hugmynda- og kennslufræði fyrir leikskólabörn að þriggja ára aldri.

C. Önnur verkefni
Heimilt er að sækja um styrki til hvers kyns þróunarverkefna þótt ofangreind svið njóti forgangs.

Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands annast umsýslu með sjóðnum og veitir nánari upplýsingar rannsokn.khi.is/throunarsjodur. Reglur um sjóðinn og ýmsar aðrar upplýsingar er einnig að finna á vef menntamálaráðuneytisins .

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

Rafræn umsóknareyðublöð og upplýsingar um fylgigögn eru aðgengileg á vef Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands rannsokn.khi.is/throunarsjodur

Umsóknir skulu hafa borist til Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands, rannsokn.khi.is/throunarsjodur fyrir kl.16. föstudaginn 27. febrúar 2004.

Menntamálaráðuneytið, 16. janúar 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum