Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þýðingarsjóður. Auglýsing um styrki til útgáfu á þýðingum erlendra bókmennta

Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu, um Þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að veita útgefendum fjárstuðning til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli, jafnt skáldverka sem viðurkenndra fræðirita. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna.Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu, um Þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að veita útgefendum fjárstuðning til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli, jafnt skáldverka sem viðurkenndra fræðirita. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna. Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:

1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.

2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök.

3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum.

4. Eðlileg dreifing sé tryggð.

5. Útgáfudagur sé ákveðinn.

Fjárveiting til Þýðingarsjóðs í fjárlögum 2004 nemur 8,6 milljónum króna.

Eyðublað fyrir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublöð á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

Umsóknarfrestur rennur út 5. mars 2004.

Stjórn Þýðingarsjóðs, 12. janúar 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum