Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fornleifasjóður - Auglýsing um styrki árið 2004

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Veittir verða styrkir til til verkefna, sem stuðla að rannsóknum og varðveislu á fornleifum og forngripum.

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr.

þjóðminjalaga nr. 107/2001. Veittir verða styrkir til til verkefna, sem stuðla að rannsóknum og varðveislu á fornleifum og forngripum. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Á fjárlögum 2004 eru 5 milljónir króna til ráðstöfunar. Úthlutunarreglur sjóðsins nr. 73/2004 eru birtar í Stjórnartíðindum og á vefsíðu menntamálaráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

Umsóknir, í fjórum eintökum, sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Reykjavík, 29. janúar 2004

Stjórn Fornleifasjóðs

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum