Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu

Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu. Með þróunarverkefnum er átt við tilraunir og nýbreytni í skólastarfi.

Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu. Með þróunarverkefnum er átt við tilraunir og nýbreytni í skólastarfi. Skólameistarar framhaldsskóla, fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara, samtök skóla og fagfólks í framhaldsskólum, svo og aðilar sem reka nám fyrir fullorðna sem að mati ráðuneytisins telst hliðstætt námi á framhaldsskólastigi, geta sótt um styrki.

Með vísun til 2. gr. reglna nr. 274/1997 um styrkveitingarnar er auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna á skólaárinu 2004-2005 sem hér segir:

Verkefni tengd kennslu á sviði starfsmenntunar.

Verkefni á sviði fullorðinsfræðslu. Áhersla er lögð á verkefni sem miða að því að styrkja undirstöðufærni fullorðinna til náms, s.s. lestrar- og skriftarfærni.

Heimilt er að sækja um styrki til hvers kyns þróunarverkefna en ofangreind svið njóta forgangs.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu í síðasta lagi 27. febrúar næstkomandi á þar til gerðu eyðublaði sem hægt er að fá í afgreiðslu ráðuneytisins. Eyðublaðið er einnig að finna á vef ráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is undir Afgreiðsla / Sjóðir og eyðublöð / Þróunarsjóður framhaldsskóla.

Menntamálaráðuneytið, 30. janúar 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum