Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um sérstakan stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti Íslands árlega fram 5,5 milljónir króna til verkefna á eftirtöldum sviðum, sbr. gr. 4 í samningnum.

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um sérstakan stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti Íslands árlega fram 5,5 milljónir króna til verkefna á eftirtöldum sviðum, sbr. gr. 4 í samningnum:

1. Endurmenntunarnámskeiða fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum

2. Námsefnisgerðar í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla

3. Rannsókna- og þróunarstarfs á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls

4. Vitundarvakningar um mikilvægi dönskukunnáttu.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um verkefni á fyrrgreindum sviðum.

Samstarfsnefnd sem skipuð er fulltrúum beggja landanna metur umsóknir og gerir tillögur um styrkveitingar.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu í síðasta lagi föstudaginn 19. mars nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og sem jafnframt má nálgast á vef ráðuneytisins. Slóðin er menntamalaraduneyti.is. Á vefnum er einnig að finna samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar veitir María Gunnlaugsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, sími 545 9500, netfang: [email protected]

Menntamálaráðuneytið, 13. febrúar 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum