Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.

Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja eftirtalin verkefni:

  • Sérstök verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra. Ekki eru veittir styrkir til árvissra eða fastra atburða í félagsstarfi, svo sem þinga, móta eða þess háttar atburða né ferða hópa.
  • Þjálfun æskulýðsleiðtoga og leiðbeinenda til virkrar þátttöku í æskulýðsstarfi, m.a. með námskeiðum og þátttöku í þeim.
  • Nýjungar og tilraunir í félagsstarfi barna og ungmenna.
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka á sviði félagsstarfa.

Við mat á umsóknum er meðal annars tekið tillit til fjölda þeirra sem taka þátt í verkefnunum og til eigin fjármögnunar verkefna. Sérstakt tillit er tekið til minni félaga og félagasamtaka er vinna að æskulýðsmálum.

Styrkir úr sjóðnum eru veittir tvisvar á ári og er næsti frestur til að skila inn umsóknum 10. mars 2004.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, sími 545-9500 og á heimasíðunni www.menntamalaraduneyti.is.

Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Æskulýðssjóður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Menntamálaráðuneytið, 20. febrúar 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum