Hoppa yfir valmynd
5. mars 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Danmörku

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2004-2005. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir.

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2004-2005. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 5.000 d.kr. á mánuði. Umsóknarfrestur er til 27. mars nk.

Umsóknir um ofangreinda styrki, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, ásamt nánari upplýsingum. Umsóknareyðublaðið er hægt að nálgast á vef Cirius.

Menntamálaráðuneytið, 05.03.2004.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum